úrræði í heilbrigðiskerfinu .
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir þessi svör þó að þau gagnist lítið og jafnvel ekkert við því vandamáli sem ég ræddi akkúrat núna. Ég vildi óska að þetta væri einsdæmi en það er bara fjarri því, þetta er of algengt í okkar heilbrigðiskerfi. Þessar útskýringar gera ekkert fyrir fátæka þjóðfélagsþegna sem koma alls staðar að lokuðum dyrum, því að þótt ég hafi nefnt þetta eina dæmi hérna eru fjölmargir sem hafa svipaðar reynslusögur að segja þegar kemur að heilbrigðiskerfinu okkar. Ég spyr því hæstv. ráðherra hreint út: Hvað getum við gert fyrir einstaklinga í nákvæmlega þessari stöðu sem koma alls staðar að lokuðum dyrum sökum fátæktar eða örorku og geta ekki beðið þess að ný nefnd verði stofnuð til þess að leysa vandann?