154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

sektarfjárhæðir í lagareldi.

[15:42]
Horfa

matvælaráðherra (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og vil byrja á því að segja að málið er til umfjöllunar hjá atvinnuveganefnd og þar er tillaga frá mér um að þetta yrðu hámarkssektir en eins og ég hef sagt er það nefndarinnar að vinna úr því. Telji hún að hægt sé að afnema þetta þak eða hækka það með einhverjum hætti þá er það auðvitað nefndarinnar að vinna áfram með það. Við stöndum frammi fyrir því að það er hvorki meiri hluti á þessu þingi né líklega held ég innan flokka almennt, eins og hv. þingmaður nefndi, eini aðilinn sem vill banna fiskeldi í sjó. Enginn annar flokkur hefur, alla vega að mínu viti, lýst því yfir að vera sama sinnis og þá stöndum við frammi fyrir því að við þurfum að bæta lagaumhverfið. Við verðum einhvern veginn að ná betur utan um greinina heldur en við höfum gert fram til þessa.

Ég er alveg sammála því að þó að auðvitað sé pínulítið brot af starfsemi Arnarlax hér á landi þá eru þeir sannarlega að greiða sér risaarð fyrir starfsemina. Það er auðvitað bara eitt fyrirtæki af fleirum. Við þurfum að hafa það í huga að þetta á kannski ekki við um öll og mörg eru í uppbyggingarfasa.

Ég vil hafa frumvarpið þess eðlis, eins og það er, að það sé hvetjandi og ívilnandi í þá átt að koma fyrirtækjunum hvort heldur er í lokað eldi eða í geldfiska eða hvað það er sem verður til þess að atvinnustarfsemin verði með betri hætti en hún er í dag. Það er auðvitað fyrst og fremst það sem ég hef lagt upp með í tengslum við þetta frumvarp.

Annað: Eins og hv. þingmaður veit, enda situr hann í atvinnuveganefnd, hefur verið rætt í nefndinni og er verið að skoða, vænti ég, einhverjar leiðir til að breyta. Ég treysti því bara að þingmaðurinn komi þessu áleiðis og þetta verði þá bara tekið til umfjöllunar, ekki síst í sambandi við gjaldtökuna.