sektarfjárhæðir í lagareldi.
Forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra svörin. Ráðherra nefndi hér áðan að atvinnuveganefnd gæti hækkað þakið á sektum ef hún teldi slíkt hægt. Það getum við að sjálfsögðu. En vegna þess hvernig hæstv. ráðherra og ráðuneytið lagði upp frumvarpið frá upphafi, eins og ég nefndi, með ótímabundnum leyfum, þá er strax komin sú krafa að þar verði lækkuð sú upphæð sem kemur við hvern lax. Þannig að kannski verður það þá bara í 50.000 kr. í staðinn fyrir 5 milljónir. Á sama tíma nefnir hæstv. ráðherra líka ófrjóan lax og lokaðar kvíar. Við erum alveg búin að fá það á hreint á fundum atvinnuveganefndar að hvorugt mun verða valkostur næstu 15 árin eða svo. Því spyr ég í seinni spurningunni: Á hvaða tímapunkti heldur hæstv. ráðherra að fyrirtæki sem greiða sér stjarnfræðilegan arð geti farið að sjá það sem ódýrari kost að skera á kvíarnar og sleppa lúsasýktum fiski og borga sektina í stað þess að fara í dýrt og flókið viðhald eða slátrun og urðun?