154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

sektarfjárhæðir í lagareldi.

[15:46]
Horfa

matvælaráðherra (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég vil kannski byrja á því að svara þessu síðasta. Ég ætla engum sem stundar almenna atvinnustarfsemi að haga sér með þeim hætti sem hv. þingmaður nefndi hér í lokin. Hvað varðar upphæðirnar þegar kemur að þessu þá verður, eins og ég segi, nefndin bara að taka það til vinnslu telji hún ástæðu til þess. Þetta var lagt upp með og þótti og þykir afskaplega hátt í samhengi við aðrar sektarfjárhæðir sem aðrar atvinnugreinar á landinu búa við. Ég hef alveg stutt þetta og stutt að það verði skoðað vegna þess að þetta er mjög varasöm atvinnustarfsemi og hún hefur gríðarleg umhverfisáhrif. Þess vegna er mikilvægt að við klárum okkur af þessu máli, vegna þess að það er betra að klára það þó að það sé ekki fullkomið heldur en við búum við það ástand sem við búum við í dag. Það er þannig alla vega að mínu mati. Það er ekki þar með sagt að við klárum á næsta ári eitthvað sem er miklu betra heldur en það sem við erum með hér, (Forseti hringir.) þannig að ég legg áherslu á það að við náum betur utan um greinina (Forseti hringir.) með því að klára þetta mál.