fordæming á hryðjuverkum á Gaza og krafa um vopnahlé.
Hæstv. forseti. Hryllingurinn á Gaza eykst með hverjum deginum sem líður. Öllum ætti að vera orðið ljóst að árásir Ísraelsmanna á óbreytta borgara, flóttamannabúðir, blaðamenn, hjálparstarfsmenn og mikilvæga innviði eru langt fyrir utan viðurkenndan rétt til sjálfsvarnar. Það er mikið umhugsunarefni fyrir okkur öll hvað alþjóðasamfélagið er máttlaust gagnvart stöðunni. Nærri 40.000 manns hafa látið lífið í linnulausum árásum í meira en hálft ár. Ísraelar virðast fara sínu fram óháð öllum þrýstingi og ákalli. Nú síðast bárust fréttir af því að fjöldi manns hefði látist þegar fjórir gíslar Hamas-samtakanna voru frelsaðir. Vissulega er það fagnaðarefni að gíslum sé bjargað en að sama skapi sorglegt að heyra af miklu mannfalli.
Á dögunum lagði þingflokkur Viðreisnar fram þingsályktunartillögu þar sem krafist er aðgerða af hálfu stjórnvalda. Lagt er til að Alþingi feli utanríkisráðherra að fordæma tafarlaust þau mannréttindabrot sem framin hafa verið á Gaza sem og að kallað verði eftir vopnahléi á svæðinu. Þá er lagt til að Alþingi álykti að fela forsætis- og utanríkisráðherra að beita sér fyrir því á alþjóðavettvangi að dráp á almennum borgurum verði stöðvuð, að gíslum verði sleppt tafarlaust og án skilyrða og að mannúðaraðstoð á Gaza verði aukin. Síðan Alþingi ályktaði einum rómi um ástandið, og það gerðist 9. nóvember, hefur ástandið versnað og versnað. Fjöldi þeirra barna sem drepin hafa verið í sprengjuregninu er í kringum 15.000. Það eru litlu færri en íbúar í Garðabæ og fleiri en búa í Mosfellsbæ. Ég vil árétta: Við erum að tala um börn. Fjöldi þeirra barna sem hafa dáið í árásunum er sambærilegur við þann fjölda sem býr í sveitarfélögum sem eru stór á íslenskan mælikvarða.
Spurningar mínar til hæstv. utanríkisráðherra eru þessar: Af hverju heyrist rödd íslenskra stjórnvalda ekki hærra? Af hverju er ekki málflutningur hæstv. utanríkisráðherra og forsætisráðherra afdráttarlausari þegar kemur að ástandinu á Gaza? Styður hæstv. ráðherra fyrrnefnda ályktun Viðreisnar sem núna liggur fyrir þinginu?