154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fordæming á hryðjuverkum á Gaza og krafa um vopnahlé.

[15:49]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina og vil að byrja á því að svara á þann veg að segja að við höfum í raun gert allt sem talið er upp í tillögunni, þ.e. við höfum fordæmum brot á alþjóðalögum. Við höfum margoft komið því á framfæri með mjög skýrum hætti að alþjóðalögum fylgi ekki eingöngu heilög réttindi heldur sömuleiðis heilagar skyldur og það sé aldrei hægt að réttlæta brot á alþjóðalögum algerlega óháð því í hvaða aðstæðum ríki eða hópar eru. Við höfum margoft kallað eftir tafarlausu vopnahléi á öllum þeim stöðum þar sem við getum gert það og við höfum unnið á alþjóðavettvangi og við hvert tækifæri nýtt rödd okkar. Ég ætla að leyfa mér, með leyfi forseta, að lesa upp úr atkvæðaskýringu okkar hjá Sameinuðu þjóðunum bara rétt um daginn:

„Þá kom fram að á undanförnum mánuðum hafi heimurinn orðið vitni að hindrunum á aðgengi fyrir mannúðaraðstoð, vatn og orku til Gaza, fregnir séu af því að borgaralegir innviðir og sjúkrahús hafi verið nýtt í tilgangi sem geti svipt þau friðhelgi samkvæmt mannúðarlögum, og algjörlega óásættanlegt mannfall hafi orðið meðal almennra borgara — barna, mannúðar- og heilbrigðisstarfsmanna, fjölmiðlafólks og starfsfólks UNRWA. Allt séu þetta brot á mannúðarlögum. Ísland fordæmi öll brot á alþjóðalögum, þ.m.t. mannúðarlögum.“

Vopnahlé er auðvitað forsenda þess að hjálparstofnanir og aðrir viðbragðsaðilar geti veitt almennum borgurum á Gaza nauðsynlega aðstoð og dreift nauðþurftum. Við munum á næstunni auka enn frekar mannúðarstuðning okkar á svæðinu en það verður auðvitað að vera hægt að koma henni þangað. Það er aldrei hægt að réttlæta það að svelta börn og fólk, almenna borgara, inni á svæðum, alveg sama hvað gengur á. Það er það sem við sjáum merki um að sé að gerast. Það mun ég alltaf fordæma (Forseti hringir.) og segi skýrt: Íslensk stjórnvöld, Íslendingar, byggja tilveru sína á því að alþjóðalög séu virt (Forseti hringir.) og það gerum við bæði í orði og á borði og nýtum hvert tækifæri til.