154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fordæming á hryðjuverkum á Gaza og krafa um vopnahlé.

[15:51]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegi forseti. Rödd Íslands á alþjóðavettvangi þegar svona hörmungar dynja yfir skiptir miklu máli. Við getum heldur betur látið til okkar taka, við gerðum það t.d. þegar við viðurkenndum sjálfstæði Palestínu á sínum tíma. Við gerðum það þegar við vorum að aðstoða Eystrasaltsríkin þegar þau voru að reyna að komast undan hrammi kommúnismans. Ég held að það sé þannig að almenningur á Íslandi upplifi það talsvert sterkt að íslensk stjórnvöld geti talað hærra. Við sjáum að þegar við erum að tala um Úkraínu og ástandið þar er talað mjög skýrt, ekki síst þingmenn og ráðherrar Sjálfstæðisflokksins. Ég sakna þess svolítið að það sé ekki sami þungi þegar við tölum um ástandið á Gaza vegna þess að mannfallið þar er auðvitað óskaplegt. Ég hef tekið eftir því að hæstv. utanríkisráðherra hefur talað um að Ísraelsmenn hafi gengið of langt þegar kemur að gagnaðgerðum. En það væri gott (Forseti hringir.) að fá nánari útlistun á því nákvæmlega að hvaða leyti Ísraelsmenn hafa gengið of langt og einnig hvort hæstv. ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafi komið því skýrt á framfæri (Forseti hringir.) og milliliðalaust við ísraelsk stjórnvöld að þau gangi of langt og þeim beri tafarlaust að stöðva það sprengjuregn sem dynur yfir íbúa á Gaza.