154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

móttaka flóttafólks sem er þolendur mansals.

[15:54]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Mansal er ein alvarlegasta birtingarmynd ofbeldis og brota á mannréttindum sem fyrirfinnst. Mansal getur átt sér stað hvar og hvenær sem er en fólk í viðkvæmri stöðu er þó í sérstaklega mikilli hættu þar sem gerendur hagnýta sér viðkvæma stöðu þeirra og neyð. Ein skelfilegasta birtingarmynd mansals er vændismansal þar sem konur og börn eru helstu þolendur, en samkvæmt rannsókn Evrópusambandsins er talið að jafn margir verði fyrir vændismansali og vinnumansali. Stefna stjórnvalda í mansalsmálum er skýr og útlistuð í aðgerðaáætlun frá árinu 2019. Þar segir, með leyfi forseta:

„Mansal er mannréttindabrot og gengur í berhögg við mannlega reisn og friðhelgi einstaklingsins. Það er viðvarandi verkefni hverrar þjóðar að berjast gegn mansali og mikilvægt að sofna ekki á verðinum.“

Áherslur stjórnvalda hafa verið að veita fórnarlömbum mansals stuðning og öryggi og bæta verklag og viðbúnað, einkum innan réttarvörslukerfisins, til þess að sporna gegn mansali hér á landi. Í sömu aðgerðaáætlun kemur fram að mikilvægt sé að skilgreina formlegt ferli við að bera kennsl á þolendur mansals, einkum þegar í hlut á umsækjandi um alþjóðlega vernd.

Mig langar að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra hvernig tekið er á móti flóttafólki sem er þolendur mansals og hvernig stefnu stjórnvalda í mansalsmálum er framfylgt gagnvart þeim hópi.