móttaka flóttafólks sem er þolendur mansals.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina um þetta mikilvæga og viðkvæma mál sem mansal er. Íslensk stjórnvöld hafa skuldbundið sig með fullgildingu alþjóðlegra samninga til að berjast gegn mansali og í því felst m.a. að beita forvörnum, veita þolendum mansals aðstoð, stuðning og vernd og rannsaka og saksækja mansalsmál. Þolendur mansals teljast meðlimir tiltekins þjóðfélagshóps skv. 38. gr. útlendingalaga og geta því átt rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi eða þá mannúðarleyfi. Í dvalarleyfisákvæðinu fyrir hugsanlegt fórnarlamb mansals segir enn fremur að fyrst skuli meta hvort skilyrði séu til að veita alþjóðlega vernd áður en til skoðunar kemur að veita dvalarleyfi á grundvelli þess ákvæðis. Öllum þolendum stendur til boða þjónusta Bjarkarhlíðar sem gegnir hlutverki samhæfingarmiðstöðvar í mansalsmálum. Þá geta þolendur sótt þjónustu hjá móttökumiðstöðvum fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Þjónusta við umsækjendur um alþjóðlega vernd er á forræði félags- og vinnumarkaðsráðherra. Þau eiga rétt á öllu því sem umsækjendum um alþjóðlega vernd stendur til boða. Í gildi eru áherslur stjórnvalda í aðgerðum gegn mansali og annars konar hagnýtingu frá árinu 2019. Fimm ár eru liðin frá gildistöku áherslnanna og er vinna hafin að gerð nýrrar aðgerðaáætlunar. Í janúar síðastliðinn var settur á fót stýrihópur Stjórnarráðsins um aðgerðir gegn mansali og eiga sæti í honum fulltrúar fjögurra ráðuneyta. Eitt af hlutverkum hópsins er að sinna stefnumótun, tryggja yfirsýn, samvinnu og samstilla aðgerðir gegn mansali.