móttaka flóttafólks sem er þolendur mansals.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ljóst er að mikill meiri hluti þeirra mansalsmála sem rata á borð yfirvalda hérlendis er vegna fólks af erlendum uppruna sem hingað kemur bæði á fölskum vinnuforsendum en líka á flótta úr skelfilegum og ómennskum aðstæðum. Í svari hæstv. ráðherra við fyrirspurn hv. þm. Arndísar Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur kemur fram að málaskrá Útlendingastofnunar og kærunefndar útlendingamála haldi ekki utan um upplýsingar um hversu mörgum einstaklingum hefur verið veitt staða flóttamanns á grundvelli þess að viðkomandi hafi verið fórnarlamb mansals. Mig langar því að spyrja hvort hæstv. ráðherra muni beita sér fyrir því að þessar greiningar verði gerðar og með þeim hætti styrkja stöðu fórnarlamba mansals og möguleika þeirra til dvalarleyfa.