154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

móttaka flóttafólks sem er þolendur mansals.

[15:59]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinni fyrirspurn. Hjá ráðuneytinu stendur yfir vinna við nýja aðgerðaáætlun mansalsmála og endurskoðun á lögum um atvinnuréttindi útlendinga sem snúa að atvinnuþátttöku ríkisborgara þriðju ríkja og tímabundnum atvinnuleyfum útlendinga. Sú vinna ætti að leiða til frekari rýni á réttindamálum erlendra ríkisborgara í viðkvæmri stöðu á vinnumarkaði, þar með talið þolendum mansals. Nú þegar hefur verið skipaður starfshópur um endurskoðun laga um atvinnuréttindi útlendinga. Mun starfshópurinn við þá vinnu m.a. taka tillit til þeirra mansalsmála sem upp hafa komið á liðnum árum og þess lærdóms sem má draga af þeim málum, en ljóst er að taka þarf í auknum mæli tillit til áhættuþátta er snúa að vinnumansali hér á landi. Þannig að já, hv. þingmaður nefnir hér að málaskrá haldi ekki utan um greiningar og ráðherra hyggst beita sér fyrir því.