154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[16:20]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Við erum hér að fjalla um nefndarálit um breytingar á ýmsum lögum varðandi Orkustofnun og þjónustugjöld. Þar er einmitt fjallað um það að gjaldið má ekki vera hærra en nemur kostnaði við undirbúning, svo sem vegna nauðsynlegrar aðkeyptrar þjónustu, afgreiðslu leyfis og eftirlits með leyfishöfum. Ég spyr mig: Ef gjaldið stendur ekki undir þessu og verður of lágt, þarf endurskoðunarákvæði eða er ekki sjálfsagt að tryggja að í öllum tilfellum þegar um svona gjaldtöku er að ræða þá sé séð til þess að gjaldið standi undir þeim kostnaði sem við á þannig að það fari ekki á milli mála að gjaldið endurspegli algerlega kostnaðinn? Mér fannst ég hafa séð, hv. þingmaður leiðréttir mig þá, að það ættu að vera einhverjar 11–13 milljónir sem gjaldið skilaði, ég man ekki hvort það er rétt hjá mér eða hvar ég sá einhverjar tölur um það. Getur hann upplýst mig um það hvað er reiknað með að þetta gjald skili miklum fjármunum? Það hlýtur að vera búið að gera úttekt á því hverju þetta á að skila ef við höfum farið rétt að. Ég er ekki alveg búinn að finna það út en ég vona heitt og innilega að hann geti upplýst mig um það og hvort hann telji ekki að það þurfi þá að endurskoða þetta, skoða það aftur ef gjaldið er ekki að standa undir því sem það á að gera.