154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[16:44]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni svarið og fyrir að brúa hér yfir í mitt seinna andsvar af því að mig langaði einmitt að spyrja varðandi efnisvinnslu á hafsbotni. Þar held ég að við sjáum líka glitta í annað vandamál í þessu kerfi okkar vegna þess að það þarf keðju af stofnunum til að meta með fullnægjandi hætti umhverfisáhrif stærstu framkvæmdanna sem fyrirhugaðar eru. Hv. þingmaður nefnir réttilega áhyggjur Vestmannaeyjabæjar af mögulegum áhrifum efnistöku í kringum Landeyjahöfn á þá innviði sem leiða út í eyjarnar. En þar er líka bent á þau varnaðarorð sem birtast í umsögn Hafrannsóknastofnunar við það sem Orkustofnun hefur til umfjöllunar þar sem er bent á að það sé bara ekkert vitað um áhrif á egg eða lirfur eða seiði ýmissa fiskstofna á þessu svæði. Ef eigi allt í einu að fara að dæla upp sandinum af hafsbotni þá sé ekkert vitað hvort það hafi neikvæð áhrif á nytjastofna eða ekki. Ég veit ekki hvort við næðum nokkurn tímann að setja inn í eitthvert þjónustugjaldafyrirkomulag þá kröfu að Heidelberg eða annar álíka stórtækur framkvæmdaraðili þurfi að borga fyrir fullnægjandi rannsóknir til að svara þessari spurningu. Ég held að áformin séu bara að nálgast það að vera búin að sprengja af sér það sem kerfið okkar getur rannsakað og þá erum við komin að varúðarreglu umhverfisréttarins: Þegar við vitum ekki um áhrif á lífríkið og getum ekki með fullvissu sagt að áhrifin verði ekki óforsvaranleg og of mikil, er þá ekki bara rétt að anda í kviðinn og segja stopp?