breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni seinna andsvarið. Ég deili áhyggjum hans af efnisvinnslunni á hafsbotni heils hugar. Það eru ekki bara ljósleiðarar, rafstrengir og vatnslagnir þar undir heldur einnig hrygningarsvæði og ekki er langt liðið frá því að vatnslögn skemmdist við innsiglinguna í Heimaey. Þetta eru innviðir sem eru viðkvæmir þannig að það er varhugavert að grafa upp vatnsbotninn í kringum þá. Þá mega togarar ekki veiða á þessum slóðum vegna þess að við viljum ekki spilla hrygningarsvæðum, þannig að þessir tveir málstaðir rekast verulega á að mínu mati. Ég deili heils hugar áhyggjum af þessu og ítreka bara akkúrat það.