154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[17:41]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Pælingin sem er hérna á bak við um áhrifin á hagkerfið er mjög nauðsynleg fyrir þessa umræðu. Við höfum verið að glíma við fjáröflun fyrir ríkissjóð þar sem 10 milljarðar voru teknir úr Landsvirkjun og menn yppta bara öxlum: Já, þetta fannst bara, þetta hefur engin áhrif, þetta skiptir engu máli. En auðvitað skiptir þetta máli. Hagkerfið sem slíkt jafnar sig einhvern veginn að lokum og allar breytingar á því eru í rauninni breytingar á skiptingu gæða. Um leið og það er gerð ein breyting, dregnir til 10 milljarðar hér eða 5 milljarðar lagðar til hérna, þá breytir það skiptingu gæða á einhvern hátt sem verður síðan að nýju jafnvægi. Þessi peningaútprentun hér mun lenda einhvers staðar í hagkerfinu. Einhver mun borga fyrir þessa peningaprentun og eins og hv. þingmaður kom inn á þá lítur út fyrir að þetta verði bara greitt með auknum vöxtum og ýmsu öðru sem lendir ekki jafnt á landsmönnum, alls ekki. Það fer eftir því hvort fólk er með verðtryggð lán eða óverðtryggð lán eða hvernig ýmiss konar annar kostnaður sem fólk er að glíma við er hjá því. Fólk sem er í hærri tekjutíundum glímir almennt séð ekki við jaðarkostnaðinn sem fólk í lægri tekjutíundum er að glíma við. Svona kostnaður lendir frekar á þeim. En þegar hagkerfið er búið að jafna sig upp á nýtt og kannski detta þessar fasteignir aftur inn á markaðinn þá er það í rauninni ný peningaprentun að vissu leyti, allt í einu detta inn ný verðmæti inn í hagkerfi sem er búið að jafna sig. (Forseti hringir.) Það er ekki þannig að eignirnar sem við erum að kaupa út núna muni geymast til hliðar (Forseti hringir.) þangað til þær koma inn aftur og verði bara skipt út. Við þurfum að pæla í hagkerfinu.

(Forseti (ÁsF): Ég minni þingmenn á ræðutímann.)