154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[17:44]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Já, hv. þm. Björn Leví Gunnarsson kemur hérna inn á mjög mikilvægt atriði sem snýr að því hverjir það eru sem enda á að greiða fyrir ákvarðanaleysi í rauninni af hálfu ríkisstjórnarinnar. Það er auðvitað ekki svo að ef engin ákvörðun er tekin að ekkert gerist. Það verður svo, eins og ég fór yfir í ræðu minni áðan, að þeir greiða sem eru skuldsettari, eignaminni og í sumum tilvikum eru þetta Grindvíkingar sjálfir sem eru að koma inn á erfiðan húsnæðismarkaður og þurfa að kaupa sér miklu dýrara húsnæði en þeir bjuggu sjálfir í í Grindavík og eru þá mjög viðkvæmir fyrir verðbólgu og vaxtahækkunum. Þetta fellur í rauninni með beinum hætti á þá einstaklinga. Áhyggjurnar hjá mér snúa að því að þetta er ekki einstakt dæmi, fjármögnunarleysið í þessum aðgerðum, aðgerðum sem við styðjum öll. Þetta er viðvarandi stef hjá ríkisstjórninni, ekki bara í fjárlögum og fjármálaáætlun. Nýjasta tilvikið er t.d. áætlanir ríkisstjórnarinnar núna um að spara pening með því að þvinga lífeyrissjóðina til að gefa eftir ákveðna ávöxtun til framtíðar í staðinn fyrir að láta samtrygginguna og sameiginlega sjóði borga fyrir það að vond ákvörðun var tekin hjá Íbúðalánasjóði á sínum tíma, sem þarf þá að dreifa með einhverri pólitískri ákvörðun um hagkerfið með þeim hætti sem fólk ræður við. En það á að spara ríkinu pening með því að láta þetta í fangið á einhverjum öðrum. Þetta er í rauninni sami þankagangur þarna á bak við nema í öfuga átt.