154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[18:12]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu hér sem var nú nokkuð hástemmd. Hún fjallaði að megninu til um valkostagreiningu og áætlanagerð sem ég held að við getum alveg bætt okkur í. Ég sat nú á sínum tíma með hv. þingmanni í fjárlaganefnd. Ég heyrði hann einmitt oft tala um óvandaða áætlanagerð sem stóðst ekki og þess vegna værum við alltaf að upplifa einhverja fjárauka sem eiga að taka á málum sem ekki var gert ráð fyrir. En í þessu tilfelli sem við erum að ræða hér erum við í raun og veru að horfa til ófyrirséðra atvika. Þetta er ekki eitthvað sem fólk gat reiknað með, eða við getum kannski sagt: Jú, við getum reiknað með eldgosi á Íslandi. En ég held að enginn hafi gert sér í hugarlund að þeir atburðir sem nú eiga sér stað á Reykjanesinu myndu gera það að verkum að við þyrftum að tæma heilt sveitarfélag og koma fólki fyrir annars staðar. Þá eru vangavelturnar þessar: Hverjir hefðu valkostirnir getað verið miðað við þær aðstæður sem við erum að upplifa, sem eru þeir að það þarf að rýma heilt sveitarfélag, atvinnustarfsemi leggst nánast öll af og við þurfum síðan að standa með íbúum og hjálpa þeim til að koma undir sig fótunum annars staðar? Frammi fyrir hvaða valkostum stöndum við við slíkar aðstæður? Getum við hreinlega sagt: Ókei, komið ykkur út? Það eru bara almannavarnir sem sjá um það. En hvað á að gera við íbúana þegar þeir eru komnir út?