154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[18:27]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Þetta er svona spurning allra spurninga þegar kemur að fjárlögunum þegar allt kemur til alls. Svörin þar verða kannski aldrei nákvæm. Það er alltaf breytilegt eftir aðstæðum hvar væri hægt að horfa til þess að hafa jákvæð áhrif á hagkerfið. Eins og er þá verður ríkisstjórnin að taka þá ákvörðun að hagkerfið lagist bara með því að einhver annar reddi því. Þá eru það stýrivextirnir hjá Seðlabankanum og kjarasamningarnir þar. Samt kemur ríkisstjórnin með heilan helling inn í kjarasamningapakkann og fjármagnar það ekkert o.s.frv. Þetta er rosalega flókið.

En hvernig, hvað er nærtækast? Ég ætla að gerast gríðarlega róttækur og segja að væri rosalega gott fyrsta skref að leggja niður fjármála- og efnahagsráðuneytið og bara fjárlaganefnd líka. Byrjum bara á að henda því út og setjum ábyrgðina á því að fjárheimildarábyrgðin tengist betur þeim lögum sem fjárheimildin tengist, t.d. lögum um almannatryggingar, þar er það bara félags- og vinnumarkaðsráðherra sem ber ábyrgð á því að koma með tillögur um fjármögnun á því, heilbrigðisráðherra varðandi heilbrigðiskerfið o.s.frv., en sleppum þessum blessaða millilið sem er að þvæla alla umræðuna alveg fram og til baka. Það er alla vega staðan í dag. Fjármála- og efnahagsráðuneytið gæti svo sem verið hjálplegra að ýmsu öðru leyti. En undanfarinn áratug hefur það verið einstaklega óhjálplegt í að leysa eða í rauninni kannski búa til vandann þegar allt kemur til alls, og ég held að það sé pólitískt. Þannig að kannski væri það svarið þegar allt kemur til alls. Pólitíkin er bara svo hryllilega léleg að hún hefur ekki getað gert það. Okkur vantar nýja pólitík.