154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[18:29]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Við erum hér með enn eitt frumvarp til fjáraukalaga, fjórði fjáraukinn fyrir árið 2024, og það er lagt fram vegna stuðningsaðgerða við íbúa og atvinnurekendur í Grindavíkurbæ í kjölfar eldsumbrota og jarðhræringa á Reykjanesskaga. Það sem af er ári hafa þrjú fjáraukalagafrumvörp verið lögð fram og tvö þeirra hafa verið vegna atburðanna á Reykjanesskaga og svo var eitt vegna kjarasamninga þannig að þetta er þriðja fjáraukalagafrumvarpið sem er vegna stuðningsaðgerða við Grindavík. Ég tel að það sé mikil pólitísk samstaða hér á Alþingi hjá öllum flokkum að styðja við Grindavík. Þetta eru sennilega mestu jarðhræringar sem hafa orðið síðan Heimaeyjargosið varð eða áhrifin eru sambærileg þar sem fólk þurfti að flytja strax um nóttina, aðfaranótt 23. janúar 1973, og yfirgefa bæinn sinn. Ég var nú meðal þeirra, þá lítill strákur, fór um nóttina með fjölskyldu minni. Þá var 5.000 manna byggðarlag í Vestmannaeyjum en núna er það 4.000 manna byggðarlag þar sem fólk þurfti að yfirgefa heimili sín í Grindavík. Munurinn á íslenska hagkerfinu árið 1973 og í ár er að við erum fimm sinnum ríkari. Það er fimm sinnum meiri verðmætasköpun á ári og við erum með fimm sinnum stærra hagkerfi þannig að við eigum léttilega að geta staðið við bakið á Grindvíkingum. Við eigum að geta gert það sem samfélag og gert það með sóma. Ég tel að við höfum staðið okkur ágætlega í því að styðja við bakið á Grindvíkingum og atvinnurekstri þar og reynt að gera okkar besta. En vissulega er þetta lærdómskúrfa, það er alltaf hægt að betrumbæta.

Núna hefur fjármálaráðherra lagt fram frumvarp til fjáraukalaga og hefur óskað eftir fjárheimildum vegna fimm tilefna. Fjárheimildirnar eru samtals rúmlega 6,3 milljarðar, 6 milljarðar og 360 milljónir. Það er vegna varnargarða, vegna rekstraraðila í Grindavík, vegna Afurðasjóðs Grindavíkur, það fjórða er vegna húsnæðisstuðnings og í fimmta lagi kostnaður vegna framkvæmdanefndar um málefni Grindavíkurbæjar, eins og kemur fram í frumvarpinu.

Ég var í andsvörum áðan við hæstv. fjármálaráðherra og þar kom fram, ef ég man rétt, að hann taldi að stuðningurinn við Grindavík væri hátt í 100 milljarðar og núna er verið að óska eftir rúmlega 6,3 milljörðum, 6.360 millj. kr. Það hefur komið fram í ræðum hjá stjórnarandstæðingum hér, m.a. í ræðu hv. þm. Kristrúnar Frostadóttur og í andsvörum við hana, að spurningin var: Hvernig er þetta fjármagnað? Hver borgar? Þetta kostar jú. Hvaðan kemur þetta fé? Í fyrsta fjáraukalagafrumvarpinu sem við fengum hér vegna varnargarðsins í nóvember frekar en desember þá var byrjað að verja Svartsengi og Bláa lónið líka með varnargarði sem átti að kosta rúma 2,5 milljarða. Í því frumvarpi, í 3. eða 4. gr., var ákvæði um það að hækka fasteignagjöld, það átti að borga þetta með fasteignagjöldum. Ég spurði: Af hverju förum við ekki bara í almenna varasjóðinn? Það eru 3,8 milljarðar þar. Skattleggjum ekki borgarana heldur förum í almenna varasjóðinn sem er m.a. hugsaður til þess að bregðast við t.d. eldsumbrotum. Það stendur í frumvarpinu um opinber fjármál, í 24. gr. sem er um almennan varasjóð, að sjóðurinn sé til að að bregðast við tímabundnum, ófyrirsjáanlegum og óhjákvæmilegum útgjöldum. Það segir síðan í athugasemdum um greinina að það sé m.a. vegna eldgosa, sem eru algeng hér á landi. En það var ekki gert, það var farið í skattahækkun. En síðan þá hefur ekki verið nein tillaga um að fjármagna stuðning við Grindavík með sköttum eða öðru slíku. Það hefur ekki verið gert. Það virðist eiga að nota svigrúmið innan fjárlaga.

Undanfarin ár hefur verið að koma meiri peningur í ríkiskassann vegna aukins hagvaxtar og það kemur fram m.a. í þessu frumvarpi að heildartekjur ársins 2024 eru áætlaðar 1367 milljarðar kr., sem er um 11 milljörðum meira en gert var ráð fyrir í áætlun fjárlaga, 11 milljörðum meira í kassann en áætlað var í áætlun fjárlaga því að fjárlagafrumvörp næsta árs eru alltaf áætluð fram í tímann. Það er meira að koma í kassann og það er gott og blessað. Það kom, held ég, um 80–90 milljörðum meira en áætlað var í fyrra, 2023, vegna aukins hagvaxtar og það er gott. Það kemur líka fram hér að það eru meiri tekjur líka vegna umfangs afskrifta skattkrafna í samræmi við breytta aðferðafræði Fjársýslunnar og svo þess að gert er ráð fyrir hærri arðgreiðslu frá Landsvirkjun. „Vega þessar breytingar upp á móti öðrum breytingum til lækkunar tekna.“

Þessi málsgrein sem ég var að lesa upp er nákvæmlega sama málsgrein og er í fjáraukalagafrumvarpinu vegna kjarasamninganna. Þá var minnst á Landsvirkjun og svo heyrðum við í fjárlaganefnd í fréttum að það eru 10 milljarðar sem á að sækja til Landsvirkjunar í auknum arðgreiðslum sem fari í ríkiskassann, sem ég hélt að ætti að fjármagna kjarasamningana en ekki þetta.

Það sem ég er að fjalla um og ýja að er skortur á gagnsæi í því hvernig íslenska ríkið, ríkissjóður, ætlar að fjármagna stuðningsaðgerðirnar. Það er enginn greiði gerður með því að hafa þetta ekki gagnsætt. Það er enginn greiði gerður með því að það sé óljóst hvernig þetta sé fjármagnað, óljóst hvaðan peningarnir koma, þetta sé bara fjármagnað úr ríkiskassanum. Það getur vel verið að það sé hægt að fjármagna þetta eingöngu með auknum skatttekjum eins og hefur orðið, en það er mjög mikilvægt að þetta sé algjörlega á hreinu hvernig það er gert. Það kom fram í andsvörum við hæstv. fjármálaráðherra að við munum fá lán upp á 25 milljarða hjá Þróunarbanka Evrópu sem mun verða nýtt að hluta til í þessar aðgerðir.

Ástæðan fyrir því að það er mikilvægt að vera með fjármögnunina á stuðningi við Grindavík algerlega á hreinu er sú að við erum að setja aukið fé inn í hagkerfið, við erum að auka eftirspurnina. Það er að aukast eftirspurn eftir húsnæði því að Grindvíkingar hafa þurft að yfirgefa heimili sín og finna sér húsnæði annars staðar á Reykjanesskaga eða á höfuðborgarsvæðinu og annars staðar á landinu, sérstaklega á Reykjanesskaga og höfuðborgarsvæðinu. Þessi aukna eftirspurn hækkar verð á húsnæði og það hefur áhrif á verðbólguna og þessi áhrif á verðbólguna þarf samfélagið að borga. Hærri verðbólga er aukinn kostnaður fyrir samfélagið og það hefur líka áhrif á stýrivexti, hærri stýrivexti. Við þurfum að gera okkur grein fyrir því að stuðningur við Grindavík, þessi mikli fjárstuðningur, hefur áhrif á verðbólguna og hefur þar með áhrif á stýrivexti. Seðlabankastjóri hefur komið inn á þetta í ræðum sínum á vaxtaákvörðunardegi. Við búum nú við 9,25% stýrivexti og það er ekki fyrr en í ágúst sem er að vænta þess að það verði kannski farið að lækka þá. Það var því miður ekki gert síðast, hvers vegna var nokkuð óljóst en það gæti hafa verið m.a. vegna fjárútláta vegna Grindavíkur.

Það er þetta sem er stóra vandamálið. Við getum ekki horft fram hjá því að það eru miklir hagsmunir fyrir samfélagið að ná niður verðbólgunni og ná niður stýrivöxtunum. Þá verðum við að gera okkur grein fyrir því hvaðan peningarnir koma þegar við förum í aukin fjárútlát, hvort sem það er stuðningur við Grindavík eða vegna aðkomu ríkisins að kjarasamningunum. Það er aukinn peningur í umferð, það eykur þenslu og það eykur verðbólgu og heldur uppi stýrivöxtum. Þetta virðist ekki koma fram nægilega vel hjá fjármálaráðuneytinu hvar er nákvæmlega verið að sækja peninginn og hvernig á að bregðast við hvað það varðar til að stemma stigu við aukinni verðbólgu. Við setjum meiri pening inn í hagkerfið vegna stuðnings við Grindavík. Hvar eru mótvægisaðgerðirnar til að stemma stigu við verðbólgu, halda aftur af verðbólgunni, þegar við setjum aukinn pening í hagkerfið? Það er algerlega óljóst. Þetta er stóra vandamálið. Þarna þarf fjármálaráðuneytið að vera með það á kristaltæru hvernig þetta er fjármagnað. Koma skattahækkanir einhvers staðar á móti?

Það er alveg klárt mál að hærri verðbólga og hærri stýrivextir sem bitna á fólki eru eins konar skattur. Það finna það allir. Það er ákveðinn þjóðfélagshópur sem er með húsnæðislán og það er sá hópur sem er að borga, hann er að greiða fyrir verðbólguna. Það er hann sem verðbólgan og háir stýrivextir bitna á, ekki á þeim hópum sem skulda lítið. En það er mikilvægt að allir í samfélaginu taki höndum saman og greiði stuðninginn við Grindavík. Það er lykilatriðið. Það er það sem er svo mikilvægt. Vissulega er gott að það sé 11 milljörðum meira að koma í ríkiskassann í ár en áætlað var. En það er mun minna en í fyrra. Vissulega má nota þann pening til að greiða þessi fjárútlát hér að hluta til eða að öllu leyti, t.d. 6,4 milljarða og þá er meira að segja nokkuð eftir. En það eru tvö önnur fjáraukalög sem við þurfum að greiða líka.

Þar sem ég er að segja hér er einfaldlega það að við þurfum að gera okkur grein fyrir því hvernig við fjármögnum hlutina, hvernig við fjármögnum stuðninginn við Grindavík, hvernig við fjármögnum kjarasamningana. Hvað varðar kjarasamningana þá er alveg ljóst hvernig það gerist á næstu tveimur árum. Jú, það er peningurinn frá Landsvirkjun, 10 milljarðar, svo koma 3 milljarðar sem eru teknir úr ríkissjóði. Á næsta ári á að fjármagna kjarasamningsaðgerðir ríkissjóðs með því að fresta upptöku nýs örorkukerfis til 1. september, fresta því um átta mánuði og spara þannig 10,1 milljarð. Það stendur á bls. 54 og á bls. 65 í fjármálaáætlun. Þannig á að fjármagna aðgerðir vegna kjarasamninganna. En ég hef ekki enn þá fengið á hreint hvernig við ætlum að fjármagna stuðninginn við Grindavík. Það er stóra málið. Við verðum að vita það ef við ætlum einhvern tíma að koma böndum á verðbólguna og sýna aga í fjármálum. Það væri gott að vita það. Verðbólgan er vissulega að lækka en ef það verður þannig að Seðlabankinn lækkar ekki stýrivexti þrátt fyrir samdrátt upp á 4% í landsframleiðslu, þrátt fyrir þennan samdrátt, þá er eitthvað mikið að hjá okkur. Við getum ekki lifað við 9,25% stýrivexti. Það er algerlega ómögulegt. Þá erum við að lenda í svokallaðri harðri lendingu með fjöldagjaldþrotum heimila og fjölskyldna og það er ekki gott mál. Við erum eina ríkið í Evrópu sem er með svona háa stýrivexti og svona háa verðbólgu.

Ég vildi minnast á þetta vegna þess að í þessu máli hér er ekki nægilega vel gerð grein fyrir því hvernig þetta er fjármagnað. Ég held að það sé mikill ljóður á málinu. Það er vissulega verið að kaupa eignir, reyndar ekki í þessu máli hér, það kemur fram í frumvarpinu að það er verið að setja aukið fjármagn í Þórkötlu. Það kemur fram í greinargerðinni, að ef Þórkatla festir kaup á 950 eignum miðað við 79 millj. kr. meðalverð má áætla að heildarfjárfesting Þórkötlu verði 75 milljarðar kr., þar af verða lán til lánastofnana um 24 milljarðar kr. Þannig að þar eru um 50–51 milljarður kr. í útgjöld og svo aukin skuldsetning. Þetta eru eignir sem verða ekki nýttar. Það er engin notkun á þessum eignum. Það má segja að þær séu geymdar í þrjú ár og Grindvíkingum verði leyfð endurkaup á þessum eignum innan þriggja ára, geti þeir það, kjósi þeir að flytja aftur til Grindavíkur. Guð lofi að jarðhræringunum linni núna í sumar eins og nokkrir jarðfræðingar hafa bent á að gæti gerst. En það breytir því ekki að þessar eignir eru ekkert í notkun. Það er eftirspurn sem þessu nemur — segjum að það sé 75 milljarða kr. fjárfesting í 950 eignum, þá má ætla að það sé eftirspurn eftir 950 eignum annars staðar í samfélaginu og það eykur eftirspurn og það eykur verðbólgu af því að þarna er húsnæðisliðurinn undir. Það þurfa að koma mótvægisaðgerðir fjármálaráðuneytisins og ríkisfjármálanna gegn þessu en það er ekki að gerast.

Framsetningin á frumvarpinu er þannig að það er verið að nota nákvæmlega sömu málsgrein og er í fjáraukanum vegna kjarasamninganna, sem er eftirfarandi, ef ég les núna upp úr frumvarpi til fjáraukalaga vegna kjarasamninganna á bls. 16, sama málsgrein og er á bls. 21 í þessu fjáraukalagafrumvarpi, um heildartekjur ársins 2024. (Forseti hringir.) Já, ég hef ekki tíma til að lesa það en ég vísa á bls. 21 í frumvarpi til fjáraukalaga sem hér er til umræðu og hvet ykkur til að skoða bls. 16, þar er nákvæmlega sama málsgrein.