fjáraukalög 2024.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög svo yfirgripsmikla og góða ræðu og langar að spyrja hann í framhaldi af því aðeins út í þetta lán frá Þróunarbanka Evrópuráðsins. Nú er í þessu fjáraukalagafrumvarpi fjallað um lánið sem er að heildarfjárhæð 150 milljónir evra. Ég sé af greinargerð þessa frumvarps að þar er ekkert fjallað um þessa lántöku, í frumvarpinu sem við erum með hér í dag. Er það ekki dálítið sérstakt í ljósi þess að þegar frumvarp þetta var skráð inn til þingsins á laugardaginn var búið að tilkynna um lánveitinguna frá Þróunarbankanum? Hefði ekki átt að fjalla um það lán í greinargerð þessa frumvarps eða var heimild fyrir lántökunni e.t.v. þegar til staðar? Maður er orðinn svo ringlaður á öllu þessu. Telur hv. þingmaður t.d. að þetta lán frá Evrópubankanum, sem ég efast ekki um að beri hagstæða vexti, geti hugsanlega haft óvissuáhrif á skuldbindingar ríkissjóðs í ljósi þess að lánið er tekið í erlendri mynt á sama tíma og krónan mælist mjög sterk í sögulegu samhengi? Telur hv. þingmaður að lántaka af þessu tagi sé skynsamleg leið fyrir ríkið til að fjármagna verkefni sín eða ættum við hugsanlega fremur að leita annarra leiða?
Maður er orðinn svo hissa á því hvernig þetta er, hv. þingmaður, og skringilegt eins og ég nefni hér. Það er skringilegt að þessi lántaka skuli í raun aldrei nokkurn tíma hafa verið rædd hér og allt í einu er hún bara þarna. Allt í einu eru komnir þarna 24 eða 25 milljarðar íslenskra króna í myntláni og það gert án þess að það sé tekið fram í þessu frumvarpi.