fjáraukalög 2024.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður spyr um þetta lán sem upplýst var um fyrir helgi að hafi verið samþykkt að veita Íslendingum. Mér skilst að kjörin á slíku láni — þau er eingöngu verið að veita í svona bjargráð, að standa með þjóðum þegar upp koma hörmungar eins og við erum að upplifa þarna, jarðskjálftar eða flóð eða eitthvað slíkt. Hvernig að þessu er staðið eða hvernig á að gera það veit þingmaðurinn kannski betur en ég hafandi verið hér talsvert lengur en ég. En við erum í þessu frumvarpi að heimila að auka hlutafé í Þórkötlu um 37 milljarða og einhvern veginn þurfum við að fá slíka milljarða. Ég geri þá ráð fyrir að þeir 22 milljarðar sem var verið að taka að láni muni fara upp í þetta og síðan verða 15 milljarðarnir, sem á sínum tíma var samþykkt að taka úr náttúruhamfaratryggingarsjóði og setja inn í Þórkötlu, væntanlega nýttir líka. Þá er búið að fjármagna hlutafjáraukninguna inn í Þórkötlu, bæði með þessu láni upp á 22 milljarða og svo 15 milljörðum úr náttúruhamfaratryggingu, sem manni fannst nú orka tvímælis að yrði gert. Við erum að fara að soga úr náttúruhamfaratryggingu fjármuni inn í þetta þegar við ættum í raun og veru að nýta þá í allt annað en að stofna og greiða fyrir hlutafé í Þórkötlu.