154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[19:32]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég verð að segja að mér fannst það sérstakt þegar sú tillaga kom hingað fyrir þingið að taka út úr náttúruhamfaratryggingarsjóði 15 milljarða til að fjármagna hlutafé í Þórkötlu, þó að ég skilji alveg að það þarf að fjármagna hlutafé í Þórkötlu. Við þurfum að gera það annaðhvort með skattlagningu eða einhvers konar niðurskurði annars staðar eða með því að taka lán. Með þessu er ríkið að koma í veg fyrir að þurfa að taka lán fyrir allri upphæðinni en sogar út úr náttúruhamfaratryggingarsjóði fjármuni sem það hafði að mínu mati ekkert heimild til. Það þurfti lagabreytingu til að gera þetta, en sú lagabreyting fór hérna í gegnum þingið. Því miður hefur þessi ríkisstjórn og Sjálfstæðisflokkurinn verið að breyta alls konar hlutum hvað varðar fjárlög. Ég nefni Atvinnuleysistryggingasjóð sem var fjármagnaður með framlagi af launum starfsmanna. Það var stór og sterkur sjóður en svo er ákveðið á einhverjum tímapunkti: Nei, við setjum bara þennan sjóð inn í ríkissjóð og svo færðu framlag á hverju ári. Nú er þessi sjóður, Atvinnuleysistryggingasjóður, háður framlagi ríkisins á hverju ári en ekki því sem hann var búinn að safna sjálfur með framlagi af launum vinnandi fólks. Þetta hefur bara verið þannig. Framkvæmdasjóður aldraðra er svona líka, held ég, þannig að ríkið er alltaf að taka til sín einhverja peninga sem er búið að safna í gegnum sértekjur og eru ætlaðir í önnur verkefni.