154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[19:35]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu og langaði aðeins að halda áfram með það sem hv. þingmaður endaði sitt síðara andsvar á varðandi fjármögnunina á öllum þessum verkefnum. Nú hefur í nokkur ár verið reynt að búa til þjóðarsjóð og það frumvarp var lagt fram af hæstv. fjármálaráðherra fyrir einhverjum vikum en með því fororði að það færi ekki í gegn á þessu þingi heldur væri bara verið að viðra þá hugmynd. Það kom meira að segja fram í því frumvarpi að það átti að takmarka allsvakalega upphæðirnar sem færu í þann sjóð. Svo hefur líka verið tekinn peningur út úr náttúruhamfaratryggingu og maður spyr sig hvaða áhrif það muni hafa á hamfarir framtíðarinnar vegna þess að þetta var sjóður sem búið var að byggja upp mikið fjármagn í til þess einmitt að geta staðist svona áföll. Ef hraunið hefði t.d. bara fengið að fara ósnert niður til Grindavíkur væri lítið eftir af Grindavík eins og er og þá hefðu allir fengið húsin sín greidd. Þá hefðu erlendir aðilar, endurtryggingarfélögin, borgað upp stóran hluta. En í dag er það þannig að náttúruhamfaratryggingarsjóður situr mjög laskaður eftir og stjórn náttúruhamfaratryggingarsjóðs var eindregið á móti þessari aðferð.

Mig langaði að spyrja hv. þingmann hvaða ráð hv. þingmaður hefði notað við það að fjármagna þetta allt saman.