154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[19:37]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Stuðningsaðgerðir við svona aðstæður eru af tvennum toga; annars vegar uppkaup á fasteignum, sem eru í raun og veru kaup á eignum, og síðan rekstrarstyrkir eða stuðningur sem þarf þá að færa inn í fjárlög viðkomandi árs og telja til kostnaðar. En stærsti hlutinn í þessu er uppkaupin. Hér hefur verið nefnt að þetta hafi kostað einhverja 70–75 milljarða og núna þurfti ríkið að taka á sig 51 milljarð. Ef við hefðum bara reiknað þetta alveg til enda og þessi 250 hús sem ekki fengu uppkaup inn í Þórkötlu hefðu verið tekin inn í þetta og síðan hefði verið tekið lán, reyndar eins og er verið að gera núna, stærra lán til lengri tíma sem við hefðum svo greitt upp á 40 árum eða eitthvað — það hefði ekkert vafist fyrir okkur að gera það. Þó að við hefðum tekið á okkur 150 milljarða, segjum það bara, borgað upp á 40 árum, þurft að afskrifa eitthvað af þessum eignum — við myndum ekki gera það strax en það kæmi kannski til á einhverju tímabili, húsnæði er afskrifað um 2–3% á ári þannig að við værum að afskrifa þetta á einhverjum löngum tíma, 20–30 árum — ég held að þjóðarbúið sem slíkt, sem veltir 1.500 milljörðum á ári, geti alveg tekið á sig slíkt högg og dreift því á lengri tíma. Þetta er ekki eitthvað sem við þurfum að leysa akkúrat núna (Forseti hringir.) en við þurfum að bjarga fólki úr erfiðum aðstæðum. Það hlýtur að vera aðalmálið akkúrat á þessum tímapunkti.