154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[19:39]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott andsvar og er hjartanlega sammála, markmiðið og það sem við erum að reyna að gera er einmitt að bjarga fólki úr erfiðri stöðu. Það sló mig dálítið sem hv. þingmaður var að tala um varðandi Atvinnuleysistryggingasjóð og fleiri sjóði, hvernig þetta var. Hér áður fyrr fór peningurinn beint í þessa sjóði en nú fer bara allt í ríkissjóð, í hítina, og síðan er borgað út úr honum eftir því sem þarf. Á sama tíma er með þessum lögum verið að búa til sjóð, Afurðasjóð Grindavíkur, sem veitir þeim sem stunda rekstur í Grindavík ákveðna tryggingu, afurðatryggingu, en að sama skapi vitum við ekkert hvort það mun þurfa að nýta þennan sjóð. Við höfum séð þá þróun verða síðustu skipti sem hefur gosið að það er öllu lokað þegar gosið hefst en á innan við 24 tímum hafa flestir fengið að fara til baka í verðmætabjörgun í þessi fyrirtæki, sem geta að sjálfsögðu skemmst út af rafmagnsleysi eða einhverju öðru. En hér er verið að setja 400 milljónir í sjóð sem við vitum ekki hvað við ætlum að nota mikið af. Þurfum við yfir höfuð að hafa einn sérstakan sjóð í kringum þetta? Hefði ekki verið nóg að búa til lögin og segja: Greitt úr ríkissjóði? Þurftum við að vera að búa til eitthvert batterí í kringum það? Það er mín spurning til hv. þingmanns. Væri þetta ekki einmitt kjörið tækifæri til að gera öfugt miðað við það sem við erum að gera í öllu hinu, Atvinnuleysistryggingasjóði og öðru?