fjáraukalög 2024.
Virðulegur forseti. Burt séð frá því hvaða form er á þessu þá held ég að þessi sjóður verði ekki nýttur nema að örlitlu leyti. Það hafa ekki orðið miklar skemmdir á lagerum í Grindavík vegna þess, eins og hv. þingmaður nefnir hér, að fyrirtækjaeigendur hafa getað komist í verðmætabjörgun á örstuttum tíma. Fyrir utan það eru komnar varaaflsstöðvar til að viðhalda kælingu á frystigeymslum og öðru slíku. Ég held að þessi úrræði — hvort þetta eru einhverjir 2–3 milljarðar sem eru ætlaðir í þessi stuðningsúrræði núna á næstunni og sem við erum að vinna með í efnahags- og viðskiptanefnd — verði lítið nýtt. Það er ekki búið að nýta mikið af rekstrarstyrkjunum. Húsnæðisstyrkurinn er að detta út, launastuðningurinn er að detta út þannig að ég held að niðurstaðan verði sú að þrátt fyrir að verið sé að samþykkja þennan fjárauka upp á þessa 6 milljarða — jú, við vitum að varnargarðarnir eru komnir og það þarf að borga fyrir það en ég held að framlengingin á þessum stuðningsúrræðum verði illa nýtt af því að þeir sem eiga fyrirtæki í Grindavík þurfa annars konar úrræði. Það er það sem þingið þyrfti að taka til umfjöllunar: Hvernig getum við staðið með og stutt þessi fyrirtæki sem eru núna komin á heljarþröm? Þau fá ekki að starfa, þau eru ekki með fólk á launum, þau þurfa að borga afborganir og vexti af sínum lánum og þau eru í engri stöðu til að standa undir því. Ég myndi því segja að nú ættum við að einblína á þann hóp sem var að senda okkur pillur í fjölmiðlum um helgina um að við séum ekki að gera nóg. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)