fjáraukalög 2024.
Herra forseti. Loksins erum við eitthvað að gera. Áfram veginn. En betur má ef duga skal og það er í rauninni með hreinum ólíkindum hvað þarf margar atrennur að því að bregðast við af því afli sem hefði þurft að gera fyrir langa löngu síðan þegar byrjaði að gjósa í nóvember síðastliðnum rétt við Grindavík. Það var fyrirséð, það kom engum á óvart, en samt sem áður var ekki búið að smíða neinar alvörusviðsmyndir sem hægt væri að vinna eftir, bara alls ekki. Við erum sem sagt að fjalla hérna í þetta sinn um fjórða fjárlagafrumvarp ársins 2024, hvorki meira né minna. Við höfum þegar lagt fram þrjú. Af þessum þremur voru tvö sem voru um fjármögnunaraðgerðir, stuðningsaðgerðir einmitt vegna eldsumbrotanna, jarðhræringanna á Reykjanesi.
Það er alveg víst að ég samhryggist af öllu hjarta og öll mín samúð er með Grindvíkingum, bæði hvað lýtur að heimilum þeirra og atvinnu. Það hlýtur að vera sárara en tárum taki að vera búinn að eyða allri sinni starfsævi í að koma sér upp öflugu, stöndugu fyrirtæki og vera kominn í þær álnir að líða vel eftir erfiði og þrautseigju og standa svo frammi fyrir því núna, eins og með atvinnurekendur í Grindavík, að það er ekki einungis búið að svipta þá og kippa undan þeim grundvellinum til að halda atvinnustarfseminni áfram nema í einhverju hökti, heldur eru þeir ekki að fá tækifæri til þess að fara fram á það að láta kaupa sig úr þessari óvissu.
Eins og ég segi, þeir eiga alla mína samúð, ég samhryggist fólkinu af öllu hjarta sem hefur mátt þola allan þennan skaða og allt þetta rask vegna óvæntra náttúruhamfara. Mér finnst það hins vegar vera mjög táknrænt hvernig ríkisstjórnin þarf sífellt að leggja fram fjáraukalagafrumvörp vegna vandans. Það virðist sífellt koma þeim á óvart að það hafi gosið í og við Grindavík núna í vetur sem leið. Hvers vegna þarf t.d. að endurfjármagna Þórkötlu strax? Það hefur legið fyrir allt frá upphafi hvað félagið þyrfti að ábyrgjast margar eignir, hvað í rauninni væri möguleiki á að þyrfti að kaupa upp margar eignir og eins var búið að ganga í alls konar matsferli til að geta sýnt fram á verðgildi þessara eigna. Það hefur legið algerlega fyrir hversu mikill fjöldinn er, þó að það hafi ekki komið fram strax og að það hafi ekki enn þá alveg allir óskað eftir því að láta kaupa eignina sína. En það breytir ekki þeirri staðreynd að fjöldinn var fyrirséður svo og kostnaðurinn sem því fylgdi að kaupa þessar eignir upp til þess að koma til móts við nánast heimilislausa, og ekkert nánast heimilislausa Grindvíkinga; fólk sem var hér og er flóttamenn í eigin landi, hælisleitendur í eigin landi, og áttu mjög erfitt margir hverjir með að koma sér þokkalega fyrir með sinni fjölskyldu og gekk það svo harkalega langt að fólk var hér um jólin t.d., í vonskuveðrum og kulda og trekki voru einstaklingar með sína fjölskyldu jafnvel í sumarbústöðum þar sem var ekki einu sinni heitt vatn. Það var í desember, það gýs 10. nóvember. Það breytir ekki þeirri staðreynd að við vissum um að það væri að fara að gjósa. Landris, landris, alltaf að safnast í hólfin, endalaus kvikusöfnun, ótrúlegar jarðhræringar. Það var algerlega fyrirséð hvert stefndi. Það var bara ekki fyrirséð hversu mikið magn það yrði sem kæmu upp úr jörðinni, hvernig gos yrði; sprengigos eða öskugos og hvar nákvæmlega myndi sprungan opnast, hvar nákvæmlega myndi gjósa. En það var vitað að það myndi gjósa.
Mér finnst það alveg grundvallaratriði að gott skipulag ríki í opinberum fjármálum. Slíkt byggist á áreiðanleika, gagnsæi og góðri fyrirsjáanlegri fjármálastjórn. Hvað eru fjárlög annað en áætlun? En fjáraukalög eru aftur og aftur lögð fram, nú fjórum sinnum á sex mánuðum.
Ég ætla að vísa hér í 26. gr. laga um opinber fjármál. Þetta eru gildandi lög í landinu í dag þar sem segir, með leyfi forseta:
„Ráðherra er heimilt, ef þess gerist þörf, að leita aukinna fjárheimilda í frumvarpi til fjáraukalaga til að bregðast við tímabundnum, ófyrirséðum og óhjákvæmilegum útgjöldum innan fjárlagaársins, enda hafi ekki verið unnt að bregðast við þeim með úrræðum sem tilgreind eru í lögum þessum.“ — Með öðrum hætti.
Það kemur skýrt fram hér í fjáraukalögunum. Þau gefa engan afslátt af því að nýta þau úrræði sem fjáraukalögin heimila nema um sé að ræða viðbragð við algerlega ófyrirséðum atburðum, tímabundnum, ófyrirséðum og óhjákvæmilegum. Þess vegna er það sem ég er að segja, að þetta var fyrirséð. Það er ekkert ófyrirséð við það að við ætluðum að kaupa upp eignirnar í Grindavík og núna hins vegar erum við enn að glíma við það hvað við ætlum að gera við fyrirtækin. Nú er Þorbjörn búinn að segja upp 58 starfsmönnum. Fólkið er að missa alla festu, allt öryggi. Ég get ekki ímyndað mér hvernig það er að vera búinn að búa í litla sveitarfélaginu sínu og blómstra með sveitarfélaginu sínu alla sína ævi og vera t.d. eins og núna, að fullorðið fólk komið á efri ár og allt í einu þá ertu bara farinn. Þá er bara allt búið, bless.
En við skulum ekki gleyma því að hér hafa jarðvísindamenn, eðlisfræðingar og eldfjallafræðingar og alls konar fræðingar komið fram og þeir segja sumir hverjir bara hreint út um Reykjanesskagann: Þessi órói er kominn til að vera. Við vitum ekki hvað lengi. Reykjaneshryggurinn er vaknaður af værum blundi til langs tíma í einhver hundruð ár. Hann er vaknaður. Og þeir segja: Við getum alveg eins búist við þessum hræringum næstu 200 árin. Þannig að það er ekkert tryggt. Það er ekkert öryggi fyrirsjáanlegt nema það að Grindvíkingar, bæði atvinnurekendur, heimilin í Grindavík og allir sem þar hafa verið starfandi og búandi, eiga rétt á því að samfélagið taki utan um þau föstum tökum, traustum tökum strax, ekki með mörgum fjáraukafrumvörpum þar sem er hreinlega verið að ganga á svig við 26. gr. laga um opinber fjármál vegna þess að þetta var ekki ófyrirséð. Þetta var vitað allan tímann. Við erum með fræðinga hér. Við erum að greiða hér hundruð milljóna á ári í sérfræðiálit, í rannsóknir og allt sem lýtur að því að geta fengið að vita það í tíma á hverju við eigum von þannig að við vöknum ekki allt í einu einn daginn við að það gýs í Heimaey eða einhvers staðar, öðruvísi en að sérfræðingarnir sem eru á fullum launum hér hjá íslenskum skattgreiðendum og eru að rannsaka og undirbúa og láta okkur vita með alveg ótrúlega mikilli nákvæmni — þau tæki og tól sem er verið að nýta núna í þessar rannsóknir hafa orðið þess valdandi að við fáum að vita það með góðum fyrirvara hvað er fram undan. Það er hægt að rýma bæjarfélögin með nánast engum fyrirvara, eins og sýndi sig í Grindavík á sínum tíma.
Við eigum náttúrlega fyrst og síðast að hlusta þá á fagfólkið okkar, hlusta þá á sérfræðingana okkar, í stað þess að vera að mjatla þetta og plástra þetta og láta fólkið endalaust vera í óvissu. Hugsið ykkur, þetta eru orðnir sjö mánuðir í dag. En þetta er fyrirséð og ég trúi því ekki að það eigi endalaust að vera að mjatla og mjatla. Og t.d. þegar verið er að taka lán, endalausar lántökur, þá er líka algjört lágmark að það sé tekið fram a.m.k. ef verið er að fjármagna þessa aðgerð, fjáraukalagaaðgerðina, eins og í sambandi við Þórkötlu. Það er verið að mjatla þarna inn smám saman það fjármagn sem Þórkatla þarf á að halda til að geta staðið við skuldbindingarnar um að kaupa upp eignir af Grindvíkingum sem vilja selja þær. Þá á í rauninni allt slíkt að vera uppi á borðum og t.d. að taka það fram hér í greinargerð með þessu fjáraukalagafrumvarpi.
Þessi áföll sem hafa dunið yfir Grindavíkurbæ, það má segja að þau séu vissulega algerlega fordæmalaus. Þess vegna verðum við að bregðast við þeim og við verðum að gera það strax. Mér finnst að ríkið þurfi að finna betri leiðir til að fjármagna ófyrirséðar aðstæður og hamfarir innan ramma fjárlaga. Að bæta sífellt við útgjöldum í gegnum fjáraukalög skekkir alla mynd af afkomu hins opinbera. Ef fjárlögin eiga ekki að vera raunhæf áætlun sem hægt er að treysta heldur bara ómerkileg bókhaldsæfing, til hvers erum við þá að semja þau yfir höfuð? Ég tel að skynsamlegra væri að koma á framkvæmanlegum leiðum til að safna í sjóði eða varasjóði innan ramma fjárlaganna og mæta þannig ófyrirséðum atburðum. Það væri þá gert á gagnsæjan og skipulagðan hátt eins og hefur verið rætt hér varðandi þjóðarsjóð eða annað slíkt, en nei, við í Flokki fólksins erum ekki tilbúin að fara að safna í þjóðarsjóð á meðan við gerum ekki annað en safna skuldum. Það er í rauninni dýrmætasta fjárfestingin fyrir alla ef það er til einhver möguleiki á því að greiða niður skuldirnar sínar í því ófremdarástandi sem ríkir í hagkerfinu okkar í dag með þessa okurvexti og óðaverðbólgu sem veit ekki núna hvort hún er að koma eða fara. Maður hélt á tímabili að hún ætlaði að gefa eftir en nú virðist hún aftur vera að aðeins að stíga upp þrátt fyrir þetta ótrúlega ofbeldi sem heimilin og fyrirtækin í landinu eru að taka á sig núna með þessum ævintýralegu stýrivöxtum Seðlabankans, 9,25%. Þetta er alveg með hreinum ólíkindum hvernig er komið fram við samfélagið.
En ég segi þetta: Við eigum að taka utan um Grindvíkinga og gera það af alhug, bara einn, tveir og bingó, og það átti að vera búið að gera fyrir löngu. Þau eiga aldrei að þurfa að bíða og líða í óvissu og vita ekki hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Það er bara algerlega óásættanlegt. Þess vegna segi ég núna: Þetta virðast vera þessi barnaskref, þessi litlu skref. Nú er verið að kaupa upp heimilin af Grindvíkingum. Húsnæðisverð hækkar óneitanlega. Það voru á fimmta þúsund manns sem voru búsettir þar. Þetta voru um 1.200–1.300 heimili, íbúðir sem Grindvíkingar áttu. Það liggur á borðinu að það var húsnæðisskortur hér fyrir, það var vöntun á húsnæði áður en við fengum þetta verkefni í fangið og þessi áföll dundu yfir Grindvíkinga.
Hér hefur verið rekin algjör skortstefna á húsnæðismarkaði. Þrátt fyrir ítrekuð loforð um byggingar á 30.000 eða 35.000 íbúðum þá hefur ekki verið byggt nóg. Það er sárvantar enn þúsundir íbúða, það liggur á borðinu. Það er ekki nóg að það flæði inn fólk til okkar. Það þarf líka að fá húsaskjól. Það gildir það sama þegar við erum að lenda í svona áföllum eins og Grindvíkingar voru lenda í; þau þurfa þak yfir höfuðið. Við erum þarna að fara að bíta í skottið á okkur. Þetta er eins og hamsturinn á hjólinu. Þetta hefur þensluáhrif út í verðbólguna. Þetta kemur fram í hækkandi íbúðaverði og ég var t.d. að sjá, svona til gamans, 116 m² blokkaríbúð með bílastæðakjallara og lítilli geymslu auglýsta núna, nýbyggingu að vísu, voða fína og sæta: 114,9 milljónir ásett verð — 114,9 milljónir ásett verð.
Þetta er orðin hrein og klár geðveiki hvernig þetta íbúðaverð er að þróast hér og ég skora bara á hæstv. ríkisstjórn að fara að taka sér tak almennilega og fylgja núgildandi lögum í landinu fyrir það fyrsta þegar kemur að því að koma með fjárauka og taka alvarlega og bera virðingu fyrir fjárlögunum okkar og annað slíkt, svo ég tali nú ekki um að taka alvarlega og af virðingu utan um Grindvíkinga.