fjáraukalög 2024.
Herra forseti. Við erum auðvitað öll samstiga um að gera það sem við getum fyrir Grindvíkinga. Hins vegar er óábyrgt að ræða ekki fjármögnunina. Sjálfstæðisflokkurinn hefur státað sig lengi af því að vera ábyrgur flokkur í efnahagsmálum en upp á síðkastið finnst mér vera farið að fjara aðeins undan því orðspori. Ef við tökum bara slitin á Íbúðalánasjóði þá ætlar ríkið sín megin að spara sér peninga og varpa skuldinni yfir á aðra, sem dreifist mjög ójafnt. Mér sýnist það sama vera í uppsiglingu varðandi Grindavík. Það sem við hefðum þurft að gera og þurfum að gera er að tryggja að kostnaður falli ekki á Grindvíkinga sjálfa heldur á þjóðina alla saman og að þjóðhagsleg áhrif af aðgerðunum verði lágmörkuð. Ef það gerist sem mér sýnist vera í uppsiglingu, með því að hækka bara yfirdráttinn endalaust, munum við kynda undir áframhaldandi verðbólgu og vextir haldast áfram háir. Hverjir verða það þá sem borga fyrir þessar aðgerðir? Þyngsti kostnaðurinn fellur á þá sem skulda mest, t.d. ungt fólk á erfiðum húsnæðismarkaði.
Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hún deili þessari greiningu, hvort hún sé sammála mér í því, og hvort ekki hefði verið viturlegra að við sýndum þá ábyrgð að sameinast um leið til að fjármagna aðgerðirnar þannig að kostnaðurinn sem fellur til vegna þeirra falli í raun og veru réttlátt á alla þjóðina.