fjáraukalög 2024.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem við deilum heila, ég og hv. þingmaður, því að þetta var eins og talað út úr mínum munni. Ég tek undir hvert einasta orð og meira að segja um óráðsíu Sjálfstæðisflokksins í hagstjórn og fjármálum. Við getum, bara til gamans, þó að þetta sé nú ekki gamanmál, t.d. litið til sölunnar á Íslandsbanka. Það er eitt að vilja selja banka, það er annað hvort við viljum eiga banka. En að ætla að selja banka sem skilar tugum milljarða í arð, sem hefur skilað 170 milljörðum í hreinan hagnað á síðustu tíu árum, er í mínum huga algerlega galin hugmynd. Hvað þá núna þegar verðgildið er að lækka og bréfin eru að falla. Ég veit ekki hvort það er gert sérstaklega til að hægt sé að fjárfesta fyrir lítið en selja fyrir mikið nokkrum dögum seinna, þegar allt rýkur upp, eins og gerðist eftir fyrstu söluna. En ég tek hundrað prósent undir það með hv. þingmanni að allt samfélagið á að taka á sig ábyrgðina af því áfalli sem Grindvíkingar eru að ganga í gegnum, hvort heldur sem lýtur að heimilunum, fólkinu sem var á hjúkrunarheimilunum eða fyrirtækjunum í Grindavík. Við eigum öll að sammælast um að ganga í takt. Enda hefur mér fundist svo vera. Þó að við séum oft að agnúast hvert út í annað, hvort sem það er á samfélagsmiðlum eða hvar annars staðar sem er, þá hefur mér fundist samfélagið okkar, ef eitthvað kemur upp á og einhver á um sárt að binda, taka heils hugar og af öllu hjarta utan um það. Ég tek því undir með hv. þingmanni. Og þannig viljum við að sjálfsögðu sjá það áfram.