154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[20:16]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þingmaður kom undir lok ræðunnar töluvert að húsnæðismálum. Nú er það þannig að hæstv. fjármálaráðherra, sem mælti fyrir þessum fjárauka, var innviðaráðherra og kynnti nokkrum sinnum, held ég, með hálfs árs eða eins árs millibili, sömu 35.000 íbúðirnar sem aldrei bólaði neitt á. Þá man ég að hann talaði um að strax þyrfti að ráðast í það að komast í samband við fyrirtæki á Norðurlöndunum og tryggja mikið af einingahúsum og byggja hverfi fyrir Grindvíkinga. Það er ekkert grín þegar 4.000 nýir einstaklingar koma inn á húsnæðismarkað sem er þegar aðþrengdur og það hefði engin áhætta falist í því vegna þess að þessar íbúðir vantar. Hefur hv. þingmaður komið auga á þessi nýju hverfi?