154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[20:19]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Það er áhugavert að glíma við umræðuna sem tengist fjáraukalagafrumvarpinu og hagstjórninni sem liggur hér á bak við eða í rauninni skorti á hagstjórn. Við fáum hér útgjaldatillögur til nauðsynlegra mála, allt í lagi, en svo er bara blankó þegar verið er að útskýra hvernig eigi að borga fyrir þetta. Það skiptir alveg máli af því að það að taka enga ákvörðun um það hvernig á að borga fyrir þetta þýðir yfirleitt að kostnaðurinn lendir á fólki í samfélaginu almennt séð út af hærri vöxtum og hærri verðbólgu og ýmsu svoleiðis. Þar lendir kostnaðurinn, hann lendir yfirleitt á fólki sem glímir við há lán, er að nota allar sínar ráðstöfunartekjur í lífsnauðsynjar. Þar kemur kostnaðurinn hvað harðast niður. Þess vegna fylgir útgjaldatillögum eins og þessum sú ábyrgð að útskýra fyrir okkur hvernig er verið að koma til móts við þær. Er verið að gera það yfirleitt? Duga kjarabæturnar í kjarasamningum til að koma til móts við þetta? Hvað með almannatryggingar, duga viðbætur þar til að koma til móts við vænta verðbólgu af þeim útgjöldum sem hér eru sett fram? Þetta eru spurningar sem ég myndi vilja sjá svarað, sérstaklega með tilliti til þeirra viðkvæmu hópa sem verða alltaf harðast úti þegar verðbólga eykst, vextir verða hærri og þess háttar.