154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[20:21]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og tek heils hugar undir þetta. Við höfum svo sannarlega séð það að öll þau áföll sem ríða hér yfir höggva náttúrlega langþyngst þá sem eru veikastir fyrir og eiga í raun engan afgang til að taka takast á við áföll.

En mig langar að spyrja hv. þingmann svolítið á móti af því að ég er með hann hérna í andsvörum, vegna þess að ég ber mikla virðingu fyrir hv. þingmanni, við höfum verið saman í fjárlaganefnd og ég veit að hann er algjör snillingur þar inni og veitir mikið aðhald og er ofboðslega klókur í fjárlaganefnd, svo að ég segi það. Myndi hv. þingmaður segja að í raun hafi verið heimild til að nýta fjárauka miðað við það sem 26. gr. laga um opinber fjármál segir okkur, að það eigi að bregðast við tímabundnum, ófyrirséðum og óhjákvæmilegum útgjöldum innan fjárlagaársins, enda hafi ekki verið unnt að bregðast við þeim úrræðum með öðrum hætti? Ég er að velta því fyrir mér, eins og ég nefndi í ræðunni minni, að þetta er ekkert sem við höfðum ekki vitað fyrir fram, sem ekki var vitað um í fyrravetur að stæði til. En það voru engar sviðsmyndir og ekki neitt. Það er alltaf þessi áhættusækni eða hausnum er bara stungið í sandinn eins og strúturinn gerir og haldið að þetta líði einhvern veginn hjá, að maður rífi ekki hausinn upp úr sandinum fyrr en allt er afstaðið og þarf ekki að bregðast við. Þetta brennur rosalega á mér nú þegar við horfum hér á fjórða fjáraukann. Ég er hundrað prósent sammála hv. þingmanni, það eru alltaf þeir sem síst skyldi sem fá einn á lúðurinn hjá þessum stjórnvöldum, alltaf.