154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[20:24]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Nei, mér finnst ekkert af þessu hafa verið óvænt og ég held að þetta sé áttunda gosið, ef ég man rétt, sem við erum að glíma við núna. Við getum þó sagt eitt jákvætt, sem var þó neikvætt í því að vera jákvætt, þ.e. varnargarðarnir sem eru búnir að sanna sig og sýna að þeir hafa bjargað ótrúlega miklu. Við getum ekki sagt nákvæmlega hverju en alla vega er talið að þeir hafi bjargað því stórlega að ekki fór verr með byggðina sjálfa. En það breytir ekki þeirri staðreynd með þessa varnargarða að það hefði mátt vera byrjað á því a.m.k. að teikna þá upp og byrjað að hlaða í þá vegna þess að það var vitað allan tímann að það væri að fara að gjósa. Við vissum það öll, allt landið og miðin, það lá á borðinu. Ef við eigum að halda áfram að taka mark á því sem sérfræðingarnir okkar að segja þá fór það ekkert á milli mála, það var bara ekki alveg nákvæmlega vitað klukkan hvað eða hvaða dag en svona algerlega einhvers staðar í kringum þennan tíma, 10. nóvember, sem fyrsta gosið skall á. Það var alveg beðið eftir því, hreint út sagt beðið eftir því. En hér lágu engar sviðsmyndir fyrir eða ekkert skipulag sem var á borðinu í störfum þessarar stjórnar.