fjáraukalög 2024.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir ræðuna hér áðan, hún fór vítt og breitt yfir sviðið. Ég tek undir það, sem kom fram í upphafi máls hv. þingmanns, að auðvitað erum við öll þannig þenkjandi í þessum sal að við viljum taka vel utan um fólkið í Grindavík. Maður verður eiginlega að hafa orð á því að það er ekki nokkur einasta leið að gera sér í hugarlund hvernig fólki líður sem þarf að yfirgefa heimili sín, byggðarlagið sitt, atvinnuna sína; og óvissan er alger og hefur verið lengi og verður jafnvel lengi enn.
Hv. þingmaður kom aðeins inn á það hvernig best væri að bregðast við, hvort það ætti að gerast í fjárauka eða með varasjóði eða hvað. Ég ætla að nefna leiðina sem mig minnir að hv. þingmaður hafi komið inn á, þ.e. að við Íslendingar myndum koma okkur upp öflugum þjóðarsjóði til að bregðast við alls konar áföllum sem tengjast náttúruvá og náttúruhamförum. Þetta er hugmynd sem hefur verið í umræðunni mjög lengi, alls konar skoðanir á því hvernig ætti að fjármagna slíkan sjóð, til hvers hann væri nákvæmlega og þar fram eftir götunum. En mér finnst algerlega einboðið að í samfélagi eins og okkar, sem er alltaf með reglulegum hætti að bregðast við óvæntum skakkaföllum sem náttúran dembir yfir okkur — og við erum svo sem ekkert eina samfélagið í heiminum sem er í þeirri stöðu — væri á tilteknum tíma, á löngum tíma, hægt að byggja upp slíkan sjóð sem væri þá myndarlegur og gerði okkur fært að mæta að stærstum hluta áföllum eins og þessum.
Mig langaði bara að heyra hjá hv. þingmanni álit hennar á því. Ég vona að ég hafi ekki tekið vitlaust eftir, mér fannst eins og hv. þingmaður sæi það ekki fyrir sér að hægt væri að safna í slíkan sjóð. En mig langar að spyrja: Er þetta svona til lengri tíma litið ekki nákvæmlega það sem við eigum að gera?