fjáraukalög 2024.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Jú, til lengri tíma litið en sannarlega ekki með þessari ríkisstjórn. Mér hugnast það engan veginn, ég verð nú bara að segja það. Við höfum átt ýmsa sjóði sem hafa verið markaðir í ákveðnum tilgangi, hvort heldur sem það er náttúruhamfaratryggingarsjóður — nú á að fara að taka 15 milljarða úr honum til að setja inn í Þórkötlu sem er algerlega galið. Löggjöfin um náttúruhamfaratryggingarsjóð býður engan veginn upp á slíkt. Það virðist bara vera gengið um löggjöfina og gildandi rétt eins og ég veit ekki hvað. Við höfum t.d. verið með Framkvæmdasjóð aldraðra og ég veit ekki hvernig og hvernig sjóði við höfum verið með til þess að safna í og fólk hefur greitt í. Auðvitað eru það skattgreiðendur í lok dags þeir sem safna í þennan sjóð og þeir sem eiga fjármagnið og þeir sem borga í þessa sjóði, hvort heldur sem það er með arði frá Landsvirkjun eða eignunum okkar hér eða hvað. Það breytir ekki þeirri staðreynd að það virðist vera gengið ansi frjálslega um þessa sjóði. Þó svo að einhver ákveðin markmið séu með ákveðnum sjóðum virðist lítið vera gert með það og allfrjálslega gengið um þá og oft á tíðum allt of frjálslega. En jú, eins og hv. þingmaður nefnir, þá væri það falleg framtíðarsýn að Íslendingar ættu hér digran þjóðarsjóð sem gæti tekist á við öll áföll nánast án þess að við þyrftum að hafa miklar áhyggjur af því að eiga ekki fyrir því.
En ég verð að segja að ég get a.m.k. ekki alveg séð slíkan sjóð fyrir mér handan við hornið. Ég vonast til þess að við verðum búin að greiða niður skuldirnar okkar að stærstum hluta, höfum a.m.k. ekki mikið meira en kannski 20–25% af þjóðarframleiðslunni okkar í hreinum og klárum skuldum. Við erum nú þegar að greiða um 119 milljarða á ári bara í hreinar vaxtagreiðslur af lánum.