fjáraukalög 2024.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir svarið við spurningum mínum. Við, þingflokkur Viðreisnar, fengum til okkar fyrir allnokkrum vikum fólk úr Grindavík sem er að reka lítil fyrirtæki í bænum. Þessi hópur taldi sig þá mjög afskiptan í þeim úrræðum sem hafa verið kynnt. Ég ætla að segja það hér að ég veit að ríkisstjórnin og ráðherrar eru svo sannarlega ekki í öfundsverðri stöðu vegna þess að aðstæður fólks og fyrirtækja eru auðvitað með gríðarlega misjöfnum hætti. En þarna voru einhverjir tugir fyrirtækja undir og maður sér að sami hópurinn er enn í fjölmiðlum að kvarta undan því að ekki hafi nægjanlega mikið verið gert í því að koma til móts við þá stöðu sem uppi er. Mig langaði að spyrja hv. þm. Ingu Sæland hvort hún deili því með mér að þarna hafi viðbragð ríkisstjórnarflokkanna gagnvart atvinnustarfsemi í Grindavík kannski klikkað.