fjáraukalög 2024.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir síðara andsvar. Jú, ég tek undir það að einhverju leyti, sérstaklega þegar við erum að tala um smæstu fyrirtækin, þessi litlu og meðalstóru fyrirtæki, sem eru raunverulega að biðja um hjálp. En eins og við sjáum núna eru stigin hænuskref af því að ekki virðist vera hægt að gera allt fyrir alla í einu, það er verið að forgangsraða. Ég er ekki sammála því að við hefðum ekki átt að gera allt fyrir alla í einu, ég hefði frekar viljað sjá það. Og þessi margumtalaði rosalega framtíðarbjarti þjóðarsjóður, sem verður sjálfsagt feitur og digur eftir að maður sjálfur hefur gengið sína götu, hefði hugsanlega getað tekið á þessu alveg frá A til Ö án þess að við þyrftum að vera að brjóta 26. gr. laga um opinber fjármál og annað slíkt til að reyna að fá heimild hér í gegnum þingið fyrir fjárveitingum í hjálparaðgerðir fyrir Grindavík.