154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[20:50]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Loga Einarssyni fyrir þetta innlegg. Ég er sammála hv. þingmanni í því, og kom inn á það í minni ræðu, að auðvitað skiptir höfuðmáli hvernig við deilum síðan byrðunum. Þetta er dýrt og við þurfum að fjármagna þetta. Hvernig ætlum við að gera þetta þannig að þetta leggist ekki af fullum þunga beint inn í allar verðbólgu- og vaxtatölur eða deilist með mjög ójöfnum hætti, eins og kom fram í máli hv. þingmanns, sem þetta myndi t.d. gera ef þetta myndi leiða með einhverjum hætti til mikillar vaxtahækkana því að þá eru ákveðnir hópar þar berskjaldaðri en aðrir?

Hér gaf hv. þingmaður mér upp möguleikana A og B. Möguleiki A felur það í sér að fólkið á ráðherrastólnum sé algjörlega skyni skroppið og sé raunverulega ekkert endilega að hugsa mikið fyrir land og þjóð og ég ætla ekki að gera fólki því fólki upp þær hvatir. Ég held að þetta sé ofur einfaldlega þannig að við öll í þessum sal, stjórn og stjórnarandstaða, séum vel meinandi fólk sem vill gera vel. Hins vegar er það bara þannig að liðsuppstillingin í ríkisstjórninni er ekki að búa til besta liðið fyrir land og þjóð. Menn ná ekki að stilla saman strengi og tala saman og það er auðvitað vegna þess að við erum með flokka sem spanna þetta litróf frá hægri til vinstri, sem átti að vera einhver ægilegur kostur í samfélaginu til lengri tíma þegar þetta samstarf hófst en hefur síðan reynst okkur mjög illa. Þannig að auðvitað er þetta B-liðurinn sem hér á við. Það er bara algjör grundvallarmunur á því, og ég kom aðeins inn á þetta í ræðunni minni, sumpart hvernig Sjálfstæðisflokkurinn lítur á ríkisrekstur og hvernig Vinstri græn líta á ríkisrekstur. Það hvernig eigi að fjármagna hinar og þessar aðgerðir snýst til að mynda um það hvort það eigi (Forseti hringir.) að skera niður, hvort það eigi að fara í lántökur, hvort það eigi að fara í skattahækkanir. Þetta eru nákvæmlega þau svið stjórnmálanna (Forseti hringir.) sem þessir flokkar eiga erfiðast með að ná saman um.