fjáraukalög 2024.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Loga Einarssyni fyrir þetta. Ég er sammála því, mér finnst að þessi úrræði og þessar aðgerðir sem verið er að grípa til þurfi að vera víðtækari. Það kostar vissulega meiri pening og mér hefur fundist hv. þm. Guðbrandur Einarsson, sem leitt hefur þessa umræðu fyrir hönd okkar í Viðreisnar, koma ágætlega inn á þetta allt saman. Ég kom líka inn á þetta í ræðunni áðan. Það er bara þannig að ef ríkið, ríkisvaldið segir: Þið megið ekki búa hérna, sem gerir það síðan að verkum að atvinnustarfsemin getur ekki þrifist, þá þarf auðvitað að taka utan um þá stöðu. Mér finnst þetta bara vera kjarni þess að búa í samfélagi. Mér finnst, algerlega óháð því hvort við erum til vinstri eða hægri í pólitík, að ef það myndast einhver staða sem enginn gat séð fyrir og ríkisvaldið þarf að grípa inn í með róttækum hætti, og nú kann ég ekki fínni blæbrigði lögfræðinnar en bara út frá öllum almennum sanngirnissjónarmiðum, þá eigi fólk rétt á því (Forseti hringir.) að fá einhverjar bætur fyrir það. Hver endanlegur verðmiði á því er þekki ég svo sem ekki alveg nákvæmlega. (Forseti hringir.) En mér finnst þetta stundum bara vera spurning um það (Forseti hringir.) að mæta fólki ef það á sanngjarna heimtingu á því og það er raunin í því tilviki sem hv. þingmaður er að nefna.