154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[20:56]
Horfa

Katrín Sif Árnadóttir (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir mjög áhugaverða ræðu. Ég vildi spyrja hv. þingmann út í þann þátt þessa máls sem lýtur að fjármögnun Þórkötlu. Er það ekki dálítið undarlegt að þurfa að endurfjármagna Þórkötlu svo fljótlega eftir að félagið var stofnað? Nú lá alveg fyrir hvert var heildarfasteignamat eigna í Grindavík sem Þórkatla mátti kaupa og það átti því ekki að vera flókið fyrir stjórnvöld að gera strax í upphafi ráð fyrir því að vel flestir myndu nýta sér úrræðið. Kom það hv. þingmanni á óvart að strax væri óskað eftir auknu fjármagni, aðeins þremur til fjórum mánuðum eftir að félagið var stofnað? Þá vil ég jafnframt spyrja þingmanninn hvað honum finnist um að náttúrahamfarasjóður sé að taka þátt í fjármögnuninni. Er þetta ekki frekar atriði sem ríkissjóður ætti að fjármagna í ljósi endurtryggingarsamninga náttúruhamfarasjóðs? Nú fengum við í Flokki fólksins einmitt þær upplýsingar frá náttúruhamfaratryggingu fyrir jól að það væri mjög mikilvægt fyrir samningskjör þeirra þegar lýtur að endurtryggingum að hrófla sem minnst við þeirra starfsemi og skipulaginu í kringum hana og allra síst ætti að ganga í sjóðinn, þ.e. að taka úr honum fé til annars en var ætlað.