154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[20:59]
Horfa

Katrín Sif Árnadóttir (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir greinargott svar. Ég vil í mínu seinna andsvari víkja að vaxtakostnaði ríkissjóðs. Ríkissjóður greiðir yfir 120 milljarða kr. árlega í vexti og útlit er fyrir að þessi kostnaður muni aukast verulega á næstu árum í a.m.k. 140 milljarða. Er ekki eitthvað skondið við að flokki, sem kennir sig við ráðdeild í ríkisrekstri, Sjálfstæðisflokkurinn, hafi tekist að koma ríkissjóði svona rækilega ofan í vaxtafenið? Þetta slagar hátt upp í 10% af fjárlögum, bara hreinn vaxtakostnaður. Mikið óskaplega væri nú gott að geta eytt þessum peningum í eitthvað annað.