fjáraukalög 2024.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að beina talinu að einu af mínum uppáhaldsumræðuefnum sem er einmitt vaxtakostnaður heimila, fyrirtækja, sveitarfélaga og ríkissjóðs hérna á Íslandi. Þetta eru alveg skuggalegar tölur. 120 milljarða nefndi hv. þingmaður og getur það farið upp í enn meira, jafnvel 140 milljarða. Við verðum líka að átta okkur á því að þetta er af skuldastöðu sem er ekki óviðráðanleg. Þetta eru bara háir vextir. Ríki úti í Evrópu t.d. sem eru með miklu meiri skuldir borga hlutfallslega miklu minna í vexti, ofur einfaldlega vegna þess að vaxtakjörin eru allt önnur. Ég tilheyri flokki sem hefur verið að tala um að það sé kannski hægt að laga þetta með því að skipta um gjaldmiðil til lengri tíma. Ég er ekki viss um að flokkur hv. þingmanns deili þeirri leið með okkur í Viðreisn. En já, ég tek undir það að mikið óskaplega væri gott að geta nýtt þessa fjármuni (Forseti hringir.) í eitthvað annað. Þetta er nákvæmlega það sem hvert einasta heimili, (Forseti hringir.) hver einasta fjölskylda er að hugsa þegar hún borgar af húsnæðisláninu sínu: Mikið óskaplega væri gott að geta notað (Forseti hringir.) þessa upphæð sem fer í vexti í eitthvað annað.
(Forseti (ÁsF): Ég minni þingmanninn á að síðari ræðutími er ein mínúta.)