154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[21:06]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Forseti. Forseti. Ég verð að viðurkenna að ég fæ alltaf aðeins á heilann lag með Meat Loaf þegar ég heyri stjórnarliða klifa á því: Ég myndi gera hvað sem er fyrir Grindavík en ég myndi ekki að gera þetta. Við ætlum að standa með Grindvíkingum sama hvað en við ætlum ekki að mæta þeim hópi sem á ekki nákvæmlega þannig íbúðarhúsnæði að við getum greitt það út. Við ætlum að standa með Grindvíkingum í gegnum þetta allt saman nema atvinnurekendunum sem eiga ekki nógu mikið eigið fé til að koma undir sig fótunum annars staðar. Mér finnst þetta kaldranalegt. Mér finnst þetta ekki góð afstaða vegna þess að hópurinn sem er þarna skilinn eftir er svo lítill hluti af heildinni. Við erum að ná utan um næstum því öll, bara ekki þau. Segjum að allt myndi komast í lag á morgun, þá er samt svo mikið langtímaverkefni fyrir höndum að byggja upp í Grindavík að ég held (Forseti hringir.) — við þurfum ekkert að spá mikið fyrir um það. Það er langhlaup (Forseti hringir.) að byggja upp Grindavík og þess vegna bara hægt að koma öllu liðinu í skjól þangað til það leysist, (Forseti hringir.) óháð því hvernig eldsumbrotin enda.

(Forseti (ÁsF): Ég minni þingmanninn á að ræðutíminn er ein mínúta í síðari umferð.)