fjáraukalög 2024.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir þetta. Ég er búinn að segja þetta frá því að þetta brast á. Þetta verður mjög dýrt en fólk sem á húsnæði þarna, sem býr þarna, sem er með rekstur þarna og er í þeirri stöðu að ríkisvaldið segir: Heyrðu, núna getið þið ekki lengur verið með ykkar starfsemi eða einhverja búsetu þarna — þetta fólk á allan rétt í heiminum á því að utan um það sé tekið. Ég segi það enn og aftur: Það getur vel verið að einhver lögfræði eða einhver sjónarmið geti teygt menn í einhverja aðra átt en ég er bara tala um þessi almennu sanngirnissjónarmið. Setjum okkur í spor fólksins sem þarna er, prófum bara að gera það. Það á auðvitað allan rétt í heiminum á því að utan um það sé tekið. Það er náttúrlega þannig að þessi ríkisstjórn er oft til í að gera allt fyrir alla í tilteknum aðstæðum. Við getum t.d. nefnt að við erum tilbúin til að gera allt til að styðja við bakið á Úkraínu, (Forseti hringir.) nema þegar kemur að því að taka kjúklingabringur (Forseti hringir.) inn hér í tollfrelsi. Það eru alls konar svona girðingar sem þessi ríkisstjórn er að setja sem er erfitt að skilja.
(Forseti (ÁsF): Ég áminni þingmanninn um að ræðutími er ein mínúta í síðari umferð.)