154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[21:09]
Horfa

Katrín Sif Árnadóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Nú á ég æskuvini og -vinkonur í Grindavík og einnig á ég vinkonur sem eiga börn sem hafa búið í Grindavík. Ég stend því hérna í dag með ofboðslega þungt hjarta og votta Grindvíkingum mína allra dýpstu samúð á þessum erfiðu tímum. Grindavíkurbær hefur mátt þola gríðarlega erfiðleika undanfarna mánuði vegna eldgosa og jarðhræringa á Reykjanesskaga. Þetta ástand hefur haft skelfileg áhrif á daglegt líf íbúa, heilsu þeirra og afkomu. Grindvíkingar hafa sýnt alveg ótrúlegan styrk. Þeir hafa sýnt ótrúlega seiglu í gegnum allar þessar hamfarir. Þeir hafa staðið saman, hjálpast að og sýnt hvað fólgið er í því að vera samfélag sem stendur þétt saman þegar á reynir. Það er aðdáunarvert að sjá hvernig Grindvíkingar hafa lagt sig fram um að halda í vonina og berjast áfram þrátt fyrir þessar ömurlegu aðstæður.

Við skulum íhuga hvaða áhrif þessar náttúruhamfarir hafa haft á líf fólks í bænum. Heilt bæjarfélag þurfti að rýma heimili sín vegna yfirvofandi hættu. Fólk hefur þurft að skilja við heimili sín og þær minningar sem stofnuðust þar án þess að vita hvort það geti nokkurn tímann snúið aftur. Þetta er andlegt, þetta er tilfinningalegt og þetta er fjárhagslegt álag sem erfitt er að ímynda sér. Atvinnulífið í Grindavík hefur beðið gríðarlegt tjón. Fjölmörg fyrirtæki hafa þurft að loka tímabundið eða draga verulega úr starfsemi sinni. Ferðaþjónustan, sem var mikilvægur atvinnuvegur, hefur hrunið og útgjöld íbúa hafa aukist vegna húsnæðiskostnaðar og í mörgum tilfellum hafa tekjur þeirra skerst. Þetta skapar kvíða og óvissu hjá fjölskyldum sem vita ekki hvort eða hvenær þær geta farið aftur að vinna eða séð fyrir sér.

Börn í Grindavík hafa þurft að sæta verulegri röskun á lífi sínu. Það er til þess fallið að hafa langvarandi áhrif að upplifa slík áföll á mikilvægum mótunarárum ef viðbrögðin frá heilbrigðis- og félagskerfinu við því eru ekki nógu góð. Það er því mikilvægt að við ráðumst í sértækar aðgerðir til að tryggja vellíðan og menntun barna í bænum á komandi mánuðum. Mikilvægt er að sjá til þess að allir íbúar hafi aðgang að heilbrigðisþjónustu vegna andlegra afleiðinga hamfaranna. Við verðum að tryggja að enginn verði viðskila við þjónustu í þeim efnum. Eitt af því erfiðasta fyrir Grindvíkinga hlýtur að vera óvissan. Hvernig verður hægt að snúa aftur til eðlilegs lífs? Hvenær verður óhætt að fara heim? Mun lífið nokkurn tímann verða eins og það var áður? Þetta eru hugsanir sem íbúarnir glíma við alla daga. Á svona tímum skiptir samheldni öllu máli, að standa saman, rétta út hjálparhönd og láta gott af sér leiða gagnvart þeim sem verða fyrir barðinu á áföllunum.

Ég hvet alla landsmenn til að sýna Grindvíkingum samstöðu og veita þeim þann stuðning sem þeir þarfnast, hvort sem það er fjárhagsleg aðstoð, sjálfboðaliðastörf eða bara hlý orð, nærvera, hvað sem er. Við vonum auðvitað öll að Grindavík rísi á ný. Með samstilltu átaki og þrautseigju munum við endurreisa bæinn og styrkja hann enn frekar en áður. Við munum læra af þessum erfiðleikum. Við munum gera samfélagið okkar betur í stakk búið til að takast á við áskoranir framtíðarinnar.

Kæru Grindvíkingar. Þið eruð í okkar hjörtum og hugsunum á hverjum degi. Við stöndum öll með ykkur í gegnum súrt og sætt og það eru mín lokaorð hérna í dag.