154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[21:15]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Mig langar við þessa 1. umræðu vegna fjórða fjárauka fyrir árið 2024 að segja nokkur orð um plaggið sem hér liggur fyrir. Auðvitað er staðan sú að hér í þingsal er vilji flestra, ég leyfi mér að segja allra sem í þingsal eru og koma að afgreiðslu þeirra mála sem eru til stuðnings Grindavíkur, að gera sitt allra besta til að samfélagið þar eigi möguleika á sem mestri viðspyrnu til framtíðar. Það er auðvitað erfitt að spá um þróun mála hvað náttúruna varðar en sjálfur leyfi ég mér að vera vongóður um að minn gamli nágranni úr Stykkishólmi, Haraldur Sigurðsson, hafi nokkuð til síns máls hvað varðar framvindu næstu vikna og mánaða.

En að frumvarpinu. Hér er verið að ramma inn rúmlega 6,2 milljarða útgjaldaheimildir til málaflokka sem hafa verið nefndir í umræðunni og eru auðvitað allir þeirrar gerðar að almenn sátt er um og stuðningur við að bæta þar í. Í fyrsta lagi er viðbót upp á 4,5 milljarða til byggingar varnargarða við Grindavíkurbæ. Varnargarðarnir hafa svo sannarlega sannað ágæti sitt og ég held að það hafi gengið mun betur og árangurinn orðið mun meiri heldur en skynsamlegt var að hafa væntingar til að yrði. En það verður að hafa í huga að varnargarðarnir hafa auðvitað líka þau áhrif að þeir sem nú finna sig falla milli skips og bryggju hvað þær lausnir sem stjórnvöld bjóða upp á varðar spyrja sig sumir hverjir hvort staða þeirra væri ekki illskárri án varnargarða heldur en með þeim, þótt ég sé í engu samhengi að leggja það til að ekki hefði átt að fara í það verkefni eða að sópa ætti þeim í burtu. Ég nefni þetta bara til að draga fram að það verður að horfa á þetta í samhengi, rét eins og það hefur áhrif á þá sem í Grindavík starfa og reka fyrirtæki að nú sé búið að kaupa fasteignir stórs hluta íbúa í gegnum fasteignafélagið Þórkötlu. Aftur er ég síður en svo að leggja það til eða ýja að því að ekki hefði átt að ganga til þeirrar aðgerðar en ég held því til haga að allt hefur þetta áhrif, til að mynda þessi ákvörðun okkar í þinginu hefur áhrif á þá sem þarna ætla að stunda rekstur áfram. Það þykir mér, eins og ýmsir hafa komið inn á hér fyrr í umræðunni, grundvalla eitthvað sem er miklu nær því að vera bætur heldur en rekstrarstuðningur eða styrkur. Svona svipað eins og í Covid-faraldrinum, það var auðvitað í raun verið að borga bætur fyrir það að taka af fyrirtækjum og fólki réttinn til að skapa sér tekjur og búa til verðmæti út frá sínum tækjum, tólum og starfsgetu. Við verðum að horfa á þetta út frá réttu sjónarhorni til þess að matið sem út úr því kemur gagnvart stöðunni verði skynsamlegt. Allt sem við gerum hérna er eins og sagt er: Allt orkar tvímælis þá gert er, en það er líka þannig að allar þessar ákvarðanir hafa einhver afleidd áhrif. Það er bara það sem ég hvet virðulega fjárlaganefnd til að hafa í huga við vinnslu þessa máls þó að það verði væntanlega ekki teknir margir fundir til þess að kafa ofan í efnisatriði þess.

Það verður að hafa í huga að þeir hópar sem eru að falla milli skips og bryggju höfðu ekkert til sakar unnið þegar fyrsta rýmingin á sér stað á sínum tíma annað en að fasteign var mögulega skráð á annan en þann sem hafði lögheimili í viðkomandi eign. Við þekkjum dæmi þess þar sem foreldrar hafa verið að hjálpa börnum að eignast sitt fyrsta húsnæði og íbúð verið leigð út tímabundið á meðan börnin búa í foreldrahúsum. Það eru fullt af svona dæmum og ég hef gert athugasemdir við það að ekki hafi verið gengið til þess verks að klæðskerasníða lausnir miklu meira heldur en verið hefur. Vandinn sem við er að glíma í Grindavík er að mörgu leyti bæði miklu fjölbreyttari og flóknari heldur en sá sem við vorum að stríða við í Covid-faraldrinum og vandi sem er þannig vaxinn kallar á miklu fjölbreyttari lausnir stjórnvalda. Ég ætla bara að leyfa mér að gagnrýna það hversu treg stjórnvöld hafa verið til að horfa á mál þeim augum. Þetta eru bæði einstaklingar sem eiga þarna íbúðir og eignir sem féllu ekki inn í skapalónið sem var að mínu mati tiltölulega þröngt formað í fyrstu atrennu og hefur ekki verið breytt síðan og síðan eru það líka lögaðilar sem höfðu verið að leigja út húsnæði. Eru það skilaboð okkar héðan úr þinginu að slíkir séu einhvers lags meinsemd, að slík fyrirtæki eigi ekki að vera partur af því að byggja upp leigumarkað á Íslandi? Hvert erum við komin ef einu leigufélögin sem hafa allt sitt á þurru eru þau sem eru fyrir, full af því skattfé og þeirri fyrirgreiðslu sem opinberu leigufélögin njóta umfram þau sem eru á einkamarkaði? Ég geld varhuga við því að við hér sendum áfram neikvæð skilaboð gagnvart því að fólk og fyrirtæki standi í rekstri, smáum sem stórum. Það er ekki gott.

Áfram um málið. Í fyrsta lagi eru þetta 4,5 milljarðar til frekari uppbyggingar varnargarða við Grindavíkurbæ. Í öðru lagi er verið að bæta við 960 milljónum vegna framlengingar stuðnings í formi beinna styrkja til rekstraraðila í Grindavíkurbæ til áramóta. Um stuðningsaðgerðir gagnvart fyrirtækjum vil ég segja að aftur þykir mér hafa verið býsna léttilega skautað fram hjá því sem blasir við að þörf er á, þ.e. miklu fjölbreyttari og klæðskerasniðnari lausnir á þeim vanda sem þarna er uppi. Það er fullt af fyrirtækjum sem hefðu miklu meira gagn af öðruvísi útfærðum lausnum sem væru oft á tíðum til þess að lækka útgjöld ríkissjóðs, t.d. bara að þeim væri gert kleift að annaðhvort nýta starfsfólk sitt betur eða að afla sér tekna með þeim hætti sem þeir sem standa í rekstrinum telja skynsamlegast, auðvitað allt saman innan eðlilegra almannavarnasjónarmiða, það þarf ekki að taka það fram. En það breytir því ekki að það er enn þá verið að reyna að troða öllum rekstri í sama mótið, svona dálítið eins og ég sagði í fyrri ræðu, eins og barnið sem reynir að koma þríhyrningskubbnum í hringlaga gatið. Það mun aldrei ganga og skapar bara pirring og svekkelsi. Ég held að vilji þingsins, alls meiri hluta þess, sé í raun að gera sem best fyrir þá sem þarna hafa lent í algerlega ófyrirséðum atburðum og stöðu með sinn rekstur eða sitt heimilishald.

Í þriðja lagi er verið að leggja til 400 milljóna aukningu fjárheimilda vegna Afurðasjóðs Grindavíkur. Sá sjóður, eins og komið hefur fram þegar sú löggjöf var rædd hér í liðinni viku, held ég að það hafi verið frekar en þarsíðustu, er ætlaður til þess að veita fjárhagsaðstoð á vegum stjórnvalda fyrir rekstraraðila sem verða fyrir óbeinu tjóni á matvælum og fóðri af völdum náttúruhamfara. Þetta er svo sem ágætt og við í þingflokki Miðflokksins styðjum við þau sjónarmið sem þarna koma fram. En við viljum um leið minna aftur á hversu þröng skilyrðin geta verið. Við sjáum bara, af því að það er nú þekkt dæmi og hefur komið inn í umræðuna nokkrum sinnum, þann rekstur sem þarna er stundaður við eldi á sæeyrum. Það er ungt fyrirtæki í nýsköpun þar sem tekjur eru ekki farnar að skila sér. Slíkt fyrirtæki lendir alltaf á milli skips og bryggju í þeim lausnum sem stjórnvöld hafa enn sem komið er sett út. Ég held að það væri gustuk að fjárlaganefnd tæki það til skoðunar að útfæra þessar lausnir að einhverju marki víðar heldur en gert er í frumvarpi um Afurðasjóð.

Í fjórða lagi eru það 250 milljónir til áframhaldandi viðbótarhúsnæðisstuðnings til þess að lækka húsnæðiskostnað Grindvíkinga sem þurfa að leigja húsnæði til íbúðar utan Grindavíkurbæjar. Þetta er bara áframhald á þeirri aðgerð sem viðhöfð hefur verið og svo sem ekki mörgu við það að bæta. Síðan er þessi minnsta tala, 150 milljónir, til þess að greiða kostnað vegna framkvæmdanefndar um málefni Grindavíkurbæjar. Ég bara gef mér að þær 150 milljónir séu rökstuddar. Ég man ekki kostnaðarmatið þegar frumvarpið var afgreitt en það er væntanlega einhvers staðar í námunda við þessar tölur.

Mig langar stuttlega, því ræðutíminn hleypur frá manni, að koma inn á kafla 4 í greinargerð frumvarpsins sem snýr að endurmati á afkomu ársins 2024. Þar eru dregnar saman þær hagtölur sem liggja núna fyrir og nú erum við komin fram undir mitt ár 2024 þannig að það er farið að sjást betur gæði þeirra gagna og talna sem lagt var upp með í fjárlögum síðastliðinn desember. En staðan er sú að heildartekjur ársins 2024 eru nú áætlaðar 1.367 milljarðar sem er um 11 milljörðum meira en gert var ráð fyrir í áætlun fjárlaga. Síðan er gert ráð fyrir 1.419 milljarða gjöldum á ári sem er sömuleiðis 11 milljörðum meira en gert var ráð fyrir í áætlun fjárlaga þannig að þessar tölur haldast svona nokkurn veginn í hendur. Þetta er allt önnur þróun heldur en undanfarin ár þar sem tekjuaukinn var miklum mun meiri heldur en áætlanir gerðu ráð fyrir. En svo er nú atriði sem mig langaði sérstaklega að nefna og halda til haga þar sem segir um þetta samspil heildartekna og heildargjalda, með leyfi forseta:

„Á móti kemur að í uppfærðum horfum er gert ráð fyrir minni verðbólgu en í áætlun fjárlaga sem leiðir til um 3 ma.kr. lækkunar á áætlaðri gjaldfærslu verðbóta verðtryggðra lána.“

Ég ætla að hvetja hv. fjárlaganefnd til að fagna ekki sigri of snemma í slagnum við verðbólguna. Það voru ekki góðar tölur sem mættu okkur í síðustu mælingu. Við sáum venju fremur fjölmennar hópuppsagnir um síðustu áramót sem eru m.a. rökstuddar með því að aukinn launakostnaður sé farinn að bíta rekstur fyrirtækja meira heldur en ráð var fyrir gert. Ég hef áhyggjur af því að það sé meiri festa í þeirri verðbólgu sem við höfum glímt við núna allt of lengi þannig að ég er hræddur um að hér séu þeir sem þetta skrifuðu í fjármálaráðuneytinu farnir að fagna örlítið of snemma. Við erum að horfa á, eins og segir hér, með leyfi forseta:

„Að teknu tilliti til rúmlega 71 ma.kr. halla á vaxtajöfnuði er gert ráð fyrir að heildarafkoma ríkissjóðs verði neikvæð um 52 ma.kr., þ.e. 1,1% af VLF, sem er í takt við áætlun fjárlaga.“

Þessi lausatök í ríkisfjármálunum eru þeirrar gerðar að við verðum lengur að eiga við rekstrarhalla ríkissjóðs. Nú eru áform uppi um að það verði ekki hallalaus fjárlög fyrr en árið 2028. Allt er þetta partur af þessi sömu mynd sem er að teiknast upp að að lausatök ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum eru orðið sjálfstætt vandamál og hafa í rauninni verið það lengi og sú gríðarmikla peningaprentun sem átti sér stað í gegnum heimsfaraldurstímabilið er meginhreyfiafl þeirrar verðbólgu sem við höfum átt við að glíma núna allt of lengi. Þannig að ég hvet hv. fjárlaganefnd (Forseti hringir.) til að hugsa þetta í samhengi við önnur mál sem þar eru til meðferðar núna og reyna að stíga á bremsuna þar sem nokkur kostur er.