154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[21:32]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Eftir Covid-tímabilið þá verð ég alltaf logandi hræddur þegar ég heyri fulltrúa núverandi ríkisstjórnar og segja: Þetta er bara fyrsta skref. Svo ætlum við að fara í að leysa það sem þarf að leysa. Nú ætlum við bara að klára breiðu strokurnar fyrst og svo förum við í öll flóknu málin. En svo er meginreglan sú að svo gerist ekki neitt. Þetta er auðvitað bara svona framlengingarmál hér. Það er í rauninni afurðasjóðurinn sem er það nýja hér og kostnaður við framkvæmdina, en það er kannski annars eðlis en stóru lausnirnar sem um er að ræða. Með leyfi forseta, sagði ekki Ronald Reagan: „I'm from the government and I'm here to help“? Ég kem hér sem fulltrúi stjórnvalda og ætla að hjálpa ykkur. Þetta væri það hættulegasta sem upp á væri boðið í bandarísku efnahagslífi hvað varðar aðkomu stjórnvalda.

Sagt var í byrjun að þetta væri svona fyrsta aðgerðin, fyrsta innkoman hvað aðgerðir stjórnvalda varðar, en þá hefur komið mér á óvart, sérstaklega með tilliti til húsnæðismálanna, hversu lítið hefur fylgt eftir hvað varðar útfærðar lausnir, klæðskerasniðnar að þeim vandamálum sem þarna eru uppi. Og það er bara mjög áhugaverður punktur sem hv. þingmaður bendir hér á varðandi skilning skattalaga gagnvart umfangi íbúðaútleigu hjá einstaklingum sem eiga eina eða tvær íbúðir og leigja út. En bara einhver slíkur skurðarpunktur myndi strax leysa hluta af þeim vanda sem hér um ræðir gagnvart þeim aðilum sem falla milli skips og bryggju hvað núverandi lausnir varðar.