154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[21:39]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir áhugaverða ræðu. Mig langar til að gera að umtalsefni mínu fjárlagahallann. Við höfum séð umtalsverðan halla á fjárlögum ríkisins undanfarin ár og ég held að það sé farið að vekja áhyggjur margra. Það lítur ekki út fyrir að ríkisstjórnin telji raunhæft að loka þessu fjárlagagati fyrr en 2029 miðað við fjármálaáætlunina. Þetta leiðir til þess að ríkið þarf að taka lán sem hækkar vaxtakostnað en auðvitað má rekja þetta viðvarandi fjárlagagat til þess að það hafa orðið ýmis áföll og annað slíkt. Það er alla vega kannski svolítið það sem ríkisstjórnin skýlir sér á bak við; kostnaðarsamar aðgerðir sem koma í kjölfar þess og svo heimsfaraldur Covid og efnahagsleg áhrif hans.

Mig langar til að spyrja hv. þingmann nokkurra spurninga í tengslum við þetta. Í fyrsta lagi langar mig til þess að fá kannski afstöðu og innsýn hv. þingmanns í það hverjar séu helstu orsakir þessa viðvarandi halla á fjárlögum. Telur hv. þingmaður að um kerfislægan vanda sé að ræða eða eru þetta afleiðingar tímabundinna og ófyrirsjáanlegra aðstæðna og viðbragðsákvarðana, einstakra ákvarðana? Svo langar mig að spyrja hv. þingmann, þó að einhverju leyti hafi hann svo sem svarað þeirri spurningu í sinni ræðu og í þeim umræðum sem við höfum átt hérna á þinginu undanfarið en mig langar aðeins að fá hv. þingmann til að kjarna það: Eru einhver tiltekin brýn verkefni sem hv. þingmaður telur að sitji á hakanum vegna fjárskorts, einfaldlega vegna þess að það eru ekki til peningar, vegna þess að það gengur ekki betur en raun ber vitni að halda skipulagi á fjármálunum hér?