154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[21:42]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Fyrst hvað spurninguna varðar um hverjar séu helstu orsakir viðvarandi halla þá held ég að það sé bara það stjórnleysi sem hefur verið ríkjandi í ríkisfjármálum í tíð þessarar ríkisstjórnar. Það var sem betur fer dregin mikil björg í bú á kjörtímabilinu 2013–2016 og ég held að staða okkar væri næstum því óbærileg hefði sú eignamyndun ekki átt sér stað hjá ríkissjóði á kjörtímabilinu á undan. En það var eins og það hefði bara myndast bara nýtt gólf, öll Covid-útgjöldin, sem mig minnir að hafi verið rétt um 450 milljarðar í beinum útgjöldum ríkissjóðs. Í gegnum það tímabil sögðu stjórnvöld: Þetta er bara tímabundið, svo förum við til fyrri vegar hvað útgjöldin varðar og lífið verður eðlilegra. En það sem gerðist í raun var að það myndaðist bara nýtt útgjaldagólf og svo hefur ríkisstjórnin haldið áfram að byggja ofan á það þrátt fyrir að öll einskiptisútgjöldin dyttu út eftir að heimsfaraldrinum lauk. Ég þarf nú aðeins að rifja upp tölurnar en mig minnir að útgjaldaaukning milli ára, þegar tekið er tillit til Covid-útgjalda, hafi slegið upp undir 200 milljarða, aukning á milli ára. Þetta er algjört brjálæðisstjórnleysi í ríkisútgjöldum. Þetta er meginorsök þeirrar langvarandi verðbólgu sem við erum að glíma við. Held ég að þetta sé kerfislægt eða vegna tímabundinna ákvarðana? Þetta er orðið kerfislægt að því marki að þetta er kerfi þessarar ríkisstjórnar sem reynir að kaupa sér eitt ár í viðbót af bærilegu veðri hverju sinni á kostnað okkar skattgreiðenda og við borgum fyrir það með hærri sköttum og meiri verðbólgu án þess að fá betri þjónustu fyrir frá kerfinu. (Forseti hringir.) Ég verð að koma í seinna andsvari mínu að verkefnunum sem sitja á hakanum.