154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[21:44]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið þótt hann hafi látið bíða fram að seinna andsvari kannski þann þátt sem ég hef mestan áhuga á. Ef ég má orða það öðruvísi það sem ég held að hv. þingmaður hafi verið að segja varðandi þennan kerfislæga vanda þessarar ríkisstjórnar þá er það sem mér hefur kannski þótt vera áberandi í fjármálastjórn þessarar ríkisstjórnar það hversu tilviljanakennd hún virðist vera. Það virðist ekki vera nógu skýr framtíðarsýn og hafa jafnvel aðrir þingmenn orðað það sem svo að það vanti alla pólitík í rauninni í fjármálastjórnina, að ríkisstjórnin sé stanslaust í viðbragðsstöðu við einhverjum aðstæðum. Sannarlega sjáum við þegar á reynir, eins og við sáum í heimsfaraldrinum og við sjáum nú í þeim aðgerðum sem hefur verið gripið til til þess að bregðast við eldsumbrotum í Grindavík og nágrenni, að þetta snýst ekki um það hvort peningarnir séu til. Þetta snýst um forgangsröðun en þarna er alltaf eitthvert viðbragð í gangi og svo lendum við í því að vera farin að eyða peningum sem við eigum ekki og þá er farið í einhvern flatan niðurskurð og sagt: Jæja, nú þurfum við að sýna eitthvert aðhald. En það er ekki að sjá að mínu mati.

Ég vildi fá að spyrja hv. þingmann hvort hann sé sammála mér um það að það skorti í rauninni pólitíska forgangsröðun hjá þessari ríkisstjórn. Mín tilfinning er sú að það sé vegna þess að það er einfaldlega ekki samkomulag eins og svo sem er kannski búið að vera okkar helsta vandamál á þessu kjörtímabili. Þessi ríkisstjórn er með heitt vatn öðrum megin og kalt vatn hinum megin og útkoman verður eitthvað hlandvolgt og öllum er hvorki hlýtt né kalt. Þetta er skortur á pólitískri stefnumótun í því (Forseti hringir.) hvernig við verjum fjármunum. Það er nóg til af peningum. (Forseti hringir.) Þetta snýst um forgangsröðun og þar sem hún er ekki fyrir hendi þá erum við einhvern veginn alltaf í viðbragðsstöðu.

(Forseti (ÁsF): Ég minni þingmanninn á að ræðutímann er tvær mínútur, ekki tæpar þrjár.)